Það sem við höfum séð síðan 2003 er að hjólreiðar eru orðnar að eðlilegum ferðamáta fyrir fullorðið fólk á Íslandi sagði Óttar Proppé heilbrigðisráðherra í morgun og lagði áherslu á heilbrigði í sinni ræðu.
Það að hjóla léttir manni ekki bara lífið og léttir á samgöngukerfinu heldur léttir þetta lundina líka. Það er bara hluti af Evrópskri menningu að hjóla á milli staða, sagði Líf Magneudóttir, Borgarstjórn Reykjavíkur, í sinni ræðu.
Tweed Ride Reykjavík byrjaði með stæl 2013 þegar farin var mikil skrúðreið á klassískum hjólum með prúðbúnu fólki sem hjólaði um í miðborg Reykjavíkur. Þessir viðburðir hafa verið árlega í kringum mánaðamótin maí júní síðan. Þetta árið verður hjólað 8. júní frá Hallgrímskirkju að vanda:
Eitt aðildarfélaga LHM Reiðhjólabændur hefur safnað um 100 hjólum fyrir flóttafólk, skjólstæðinga gistiskýla og aðra þá sem eru í erfiðri stöðu. Rúmlega 70 hjól hafa þegar verið afhent, yfirfarin og löguð.
Á sumrin stendur Fjallahjólaklúbbuinn fyrir skemmtilegum hjólaferðum um höfuðborgarsvæðið auk dags og helgarferða. Þriðjudagsferðirnar byrja í byrjun maí og eru vikulega fram í september. Þú þarft ekki að vera félagi til að vera með, allir velkomnir svo það er um að gera að skella sér með.
Tweed Ride Reykjavík byrjaði með stæl 2013 þegar farin var mikil skrúðreið á klassískum hjólum með prúðbúnu fólki sem hjólaði um í miðborg Reykjavíkur. Þessir viðburðir hafa verið árlega í kringum mánaðamótin maí júní síðan. Þetta árið verður hjólað 3. júní frá Hallgrímskirkju að vanda:
Critical Mass eru viðburðir víða um heim þar sem fólk mælir sér mót og hjólar síðan í hóp sem tekur sitt pláss á götum borga. Næsta miðvikudag 31. maí er búið að skipuleggja þannig viðburð hér og kallast nú Keðjuhvörf og er það Birgir Birgisson oft kenndur við Reiðhjólabændur sem skipuleggur:
Page 1 of 29