Fulltrúar Landssamtaka hjólreiðamanna (LHM) og Reiðhjólabænda áttu nýlega fund með umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu til að ræða hvernig ætti að túlka umferðarlögin, sem leyfa hjólreiðafólki að hjóla hlið við hlið en krefja bílstjóra jafnframt um að skilja eftir a.m.k. 1,5 metra bil við framúrakstur. Útkoman varð stutt myndskeið sem lögreglan setti á TikTok. Efni þess er beint til bílstjóra.