LHM hefur frá stofnun unnið mikið starf að eflingu hjólreiða ásamt öðrum hjólreiðafélögum. Við viljum gjarnan fá áhugasama einstaklinga og félög til liðs við okkur til að efla hjólreiðar á Íslandi.
Félög geta sótt um aðild að samtökunum með því að senda bréf á póstfang samtakanna eða með tölvupósti á
Einstaklingar geta sótt um aðild að LHM með því að senda tölvupóst á
Aðildarfélög greiða 5% greiddra félagsgjalda til LHM en stjórn LHM er heimilt að semja um annað fyrirkomulag á félagsgjöldum. Of há félagsgjöld eiga ekki að koma í veg fyrir aðild félaga að LHM.
Árlegt félagsgjald fyrir einstaklinga er valfrjálst að upphæð 3.000 kr, 6.000 kr eða 9.000 kr og tilkynnist upphæðin með umsókn.
Aðild er formlega veitt á aðalfundi eða á aukaðalfundi.
Þeir sem vilja starfa með samtökunum þurfa þó ekki að bíða eftir formlegri aðild. Nóg er að óska eftir því, t.d. með því að taka það fram í tölvupósti eða merkja í tilheyrandi reit á eyðublaðinu og verður þá haft samband.