Ný hjólaþrautabraut í Öskjuhlíð
19.09.2012. Í dag klukkan þrjú verður ný hjólaþrautabraut opnuð í Öskjuhlíð. Um er að ræða ,,pumpu-braut“ (,,Pump Track“) sem farin er með sérstakri tækni og notuð til þjálfunar og leikja. Félagar í hjólreiðafélaginu Tindi eiga heiðurinn af lagningu brautarinnar og hafa unnið hana í samvinnu við Reykjavíkurborg sem leggur til svæðið. Opnun brautarinnar liður í dagskrá Samgönguviku sem nú stendur yfir. Brautin er staðsett við Nauthólsveg norðan við Háskólann í Reykjavík.