Dagskrá laugardagsferða vorið 2019

Hjólaferðir LHM frá Hlemmi verða farnar á laugardagsmorgnum í vetur nú sem endranær. Að þeim standa Landssamtök hjólreiðamanna og aðildarfélag þess, Hjólafærni. Fyrir-hjólari flesta laugardaga verður Árni Davíðsson hjólafærnikennari og formaður Landssamtaka hjólreiðamanna.Sú breyting verður samt að nú verður farið annan hvern laugardag. 

Fyrsta ferðin 2019 var farin laugardaginn 12. janúar. Næsta ferð var farin 19. janúar og síðan er farið annan hvern laugardag að 27. apríl. Einu sinni í mánuði skoðum við eitthvað ákveðið. Oftast í fyld gesta sem er sérstaklega boðið með. Dagskrá ferða er hér að neðan. Mæting er milli 10:00 og 10:15 og er hjólað af stað kl. 10:15. Sem fyrr segir verður lagt af stað frá Hlemmi en upplýsingar birtast á Facebook síðu LHM: Landssamtök hjólreiðamanna (https://www.facebook.com/LandssamtokHjolreidamanna/).
Plakat til að hengja upp og auglýsa ferðirnar er hér: 
 
Dagskrá ferðanna:
  • 12. janúar - Bílastæðahúsin í borginni
     Hjólað um bílastæðahús borgarinnar. Skoðum nýtingu og veltum fyrir okkur hvort ástæða sé til að taka betur á móti fleiri tegundum ökutækja - t.d. reiðhjól og hleðsluaðstæður fyrir rafmagnsreiðhjól.  Ekki síður eru bílahúsin  sannkallaður ævintýraheimur, sem of fáir vita af og gaman er að skoða.
  • 19. janúar - Venjuleg ferð
  • 2. febrúar - Hjólastæði
     Í þessari ferð ætlum við að skoða hjólastæði fyrir utan nokkra helstu staði á höfuðborgarsvæðinu. Eru hjólastæði fyrir utan íþróttahús, sundlaugar, verslanir, verslanamiðstöðvar, skóla o.s.frv.?
  • 16. febrúar - Venjuleg ferð
  • 2. mars - Venjuleg ferð
  • 16. mars - Umferðarlögin
    Unnið hefur verið að endurskoðun á umferðarlögum undanfarinn áratug og er endurskoðað frumvarp til umferðarlaga nú fyrir Alþingi. Laugardaginn 16. mars ætlum við að hjóla hring um borgina og pæla í því hvernig þau snúa að hjólandi umferð.
  • 30. mars - Venjuleg ferð
  • 13. apríl - Listaverkin á húsum bæjarins 
     Ferð í samstarf við Listasafn Reykjavíkur. Meiri upplýsingar síðar.
  • 27. apríl - Venjuleg ferð, lokaferð vetrarins.
Hjólaðar eru mismunandi leiðir um borg og bý eftir rólegum götum og stígum í 1-2 tíma. Markmiðið er að hittast og sjá og læra af öðrum hjólreiðamönnum hversu auðvelt er að hjóla í bænum. Mikið lagt upp úr spjalli og rólegri ferð.
 
Ferðirnar eru ókeypis og allir velkomnir. Allir sem kunna að hjóla eiga að geta tekið þátt. Meðalhraði fer eftir hægasta manni en ætti oftast að vera á bilinu 10-20 km/klst. Þegar vetrar og dimmir þarf að gera ráð fyrir hlýjum og skjólgóðum fatnaði og að hafa ljós að framan og aftan. Í hálku er öryggi í nagladekkjum á hjólinu. Auðvelt er að taka strætó á Hlemm og aðra upphafsstaði með hjólið á laugardögum, áætlun strætó er á www.straeto.is.
 
Fyrirvari er um að menn hjóla á eigin ábyrgð að öllu leyti.
 
Ef menn vilja bæta öryggi sitt á hjólinu og fá kennslu í samgönguhjólreiðum er hægt að óska eftir kennslu á öðrum tímum. Hjólaafærni veitir margháttaða þjónustu sem hægt er að kynna sér á vefnum www.hjolafaerni.is eða með því að hringja.
 
Frekari upplýsingar má fá í síma eða í tölvupósti og sömuleiðis má láta vita af þátttöku í laugardagsferð.
 
Árni Davíðsson
s. 862 9247
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
 
Sesselja Traustadóttir
s: 864 2776
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.