Reykjavíkurborg skipulag
Reykjavík 12. mars 2026
Umsögn um: Borgarlína 1. lota - Suðurlandsbraut - deiliskipulag (PDF)
Umsagnarnefnd Landssamtaka hjólreiðamanna (LHM) hefur skoðað tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir göturými Suðurlandsbrautar frá gatnamótum við Skeiðarvog og til vesturs að gatnamótum við Lágmúla. Tillagan er hluti af 1. lotu Borgarlínu.
Samkvæmt tillögunni fer Borgarlínan um Suðurlandsbraut á tveimur miðjusettum sérakreinum (almenningssamgangna) og er gert ráð fyrir göngu- og hjólastígum beggja vegna göturýmisins og gróðri á svæðum inn á milli. Þrjár Borgarlínustöðvar verða á svæðinu við Glæsibæ, Laugardalshöll og Lágmúla.
Afstaða LHM til Borgarlínunnar
LHM eru hlynnt lagningu Borgarlínu (BL) og telja samtökin að hún sé nauðsynleg aðgerð til að hægt sé að þétta byggð og byggja innávið og snúa frá þróun um dreifingu byggðar, sem hefur verið ríkjandi á höfuðborgarsvæðinu undangengna áratugi. Þéttari byggð er líkleg til að stuðla að breyttum ferðavenjum og styðja við hjólreiðar og auka hlutdeild þeirra. Hlutdeild hjólreiða er að jafnaði mest í nærumhverfi þar sem fjarlægðir eru hóflegar og umhverfið styður við þær svo sem með góðum hjólastígum. Gera má ráð fyrir að hlutdeild hjólreiða verði mest í þéttri blandaðri byggð þar sem flestar ferðir eru á bilinu 0,5 – 5 km. Margir fara mun lengri vegalengdir og þær ferðir skipta miklu máli en hlutdeild lengri hjólaferða í ferðavenjum er þó minni og þar má gera ráð fyrir að hlutdeild borgarlínunnar verði meiri.
Deiliskipulag göturýmis á Suðurlandsbraut
LHM er hlynnt framlögðum tillögum að deiliskipulagi göturýmis Suðurlandsbrautar og gerir ekki athugasemdir við hana. Ljóst er að endanleg útfærsla bíður verkhönnunar og hefur umsagnarnefnd LHM áhuga á að skoða frumhönnun verkhönnunar þegar hún er til. LHM gerir ráð fyrir því að við hönnun hjólastíga tengdum Borgarlínu verði farið eftir: „HÖNNUNARLEIÐBEININGAR FYRIR HJÓLREIÐAR Leiðbeiningar sveitarfélaga höfuðborgarsvæðisins og Vegagerðarinnar 19.12.2019“, og að tiltæk úrræði í reglugerð um umferðarmerki og notkun þeirra verði nýtt.
Virðingarfyllst
f.h. stjórnar LHM
Árni Davíðsson
Um Landssamtök hjólreiðamanna
Landssamtök hjólreiðamanna ( LHM) eru hagsmunasamtök sem hafa að markmiði m.a. að efla hjólreiðar á Íslandi sem heilsusamlegan lífsmáta og sem samgöngumáta. Öll helstu hjólreiðafélög landsins eiga aðild að LHM. Samtökin eru þó ekki aðeins málsvari félagsmanna hinna ýmsu hjólreiðafélaga sem telja yfir 2000 manns heldur eru þau jafnframt málsvari allra sem hjóla á Íslandi. LHM er aðildarfélag að European Cyclists' Federation, sem eru heildarsamtök fyrir hjólreiðafélög til samgangna og ferðalaga í Evrópu. Aðildarfélög ECF er að finna í flest öllum löndum Evrópu. LHM hlaut samgönguviðurkenningu Reykjavíkurborgar 2012 fyrir virka þátttöku og áhrif í að efla hjólreiðar á Íslandi.