Hjólaferðir veturinn 2016

Í vetur verða farnar hjólreiðaferðir á laugardagsmorgnum eins og fyrri vetur. Að þeim standa Landssamtök hjólreiðamanna og aðildarfélag þess, Hjólafærni. Fyrir-hjólari flesta laugardaga verður Árni Davíðsson hjólafærnikennari og stjórnarmaður Landssamtaka hjólreiðamanna. Flestar ferðirnar verða farnar frá Hlemmi en ætlunin er að breyta til og hjóla frá nágrannasveitarfélögum höfuðborgarinnar einn laugardag í hverjum mánuði.
Fyrsta ferðin var farinn laugardaginn 17. september. Síðan verður farið hvern laugardag fram til 26. nóvember. Engar ferðir verða í desember en fyrsta ferð eftir áramót verður 7. janúar og síðan vikulega til 29. apríl. Mæting er milli 10:00 og 10:15 og er hjólað af stað kl. 10:15. Sem fyrr segir verður oftast lagt af stað frá Hlemmi en vikulegar upplýsingar birtast á Facebook síðu LHM: Landssamtök hjólreiðamanna (https://www.facebook.com/LandssamtokHjolreidamanna/).
 
Hjólaðar eru mismunandi leiðir um borg og bý eftir rólegum götum og stígum í 1-2 tíma. Markmiðið er að hittast og sjá og læra af öðrum hjólreiðamönnum hversu auðvelt er að hjóla í bænum. Mikið lagt upp úr spjalli og rólegri ferð.
 
Ferðirnar eru ókeypis og allir velkomnir. Allir sem kunna að hjóla eiga að geta tekið þátt. Meðalhraði fer eftir hægasta manni en ætti oftast að vera á bilinu 10-20 km/klst. Þegar vetrar og dimmir þarf að gera ráð fyrir hlýjum og skjólgóðum fatnaði og að hafa ljós að framan og aftan. Í hálku er öryggi í nagladekkjum á hjólinu. Auðvelt er að taka strætó á Hlemm og aðra upphafsstaði með hjólið á laugardögum, áætlun strætó er á www.straeto.is.
 
Fyrirvari er um að menn hjóla á eigin ábyrgð að öllu leyti.
 
Ef menn vilja bæta öryggi sitt á hjólinu og fá kennslu í samgönguhjólreiðum er hægt að óska eftir kennslu á öðrum tímum. Hjólaafærni veitir margháttaða þjónustu sem hægt er að kynna sér á vefnum www.hjolafaerni.is eða með því að hringja.
 
Frekari upplýsingar má fá í síma eða í tölvupósti og sömuleiðis má láta vita af þátttöku í laugardagsferð.
 
Árni Davíðsson
s. 862 9247
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
 
Sesselja Traustadóttir
s: 864 2776
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Skoðið þetta

Allir hagnast á samgögnusamningum. Bætt heilsa, færri veikindadagar, skattfrjáls peningur og það bara fyrir að hvíla bílinn?
Samantekt Landssamtaka hjólreiðamanna um gerð samgöngusamninga.
LHM hefur útbúið leiðbeiningar fyrir umferð hjólandi á stígum og gangstéttum og götum. Markmiðið með úgáfu leiðbeininganna er að auka öryggi hjólandi í umferðinni og draga úr núningi milli hjólandi og annara vegfaranda hvort heldur er á stígum eða götum.
Leiðbeiningar LHM um umferð hjólandi á stígum og götum
Sáttmálinn innheldur góð ráð bæði til hjólreiðafólks og atvinnubílstjóra. Hann var gerður í samvinnu Samgöngustofu, Hjólafærni, Vegagerðarinnar, Eflu verkfræðistofu, Hjólaþjálfun (María Ögn), Landsamtaka hjólreiðamanna, Strætó, Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og Reykjavíkurborgar Sáttmáli atvinnubílstjóra og hjólandi vegfarenda
Nú geta einstaklingar gerst aðilar að LHM með einföldum hætti. Nánar hér.