Umsögn um: Gálgahraun - Deiliskipulag

Umsögn um: Gálgahraun - Deiliskipulag (PDF)

Garðabær - skipulag
https://skipulagsgatt.is/issues/2026/770 

Reykjavík 24. ágúst 2026

Umsagnarnefnd Landssamtaka hjólreiðamanna (LHM) hefur skoðað deiliskipulagstillögu sem nær til tveggja friðlýstra svæða, annars vegar Gálgahraun sem er friðlýst sem friðland og hins vegar Garðahraun neðra sem er hluti af friðlýstum fólkvangi.

Deiliskipulagið gerir ráð fyrir að til framtíðar sé gert ráð fyrir aðskilinni göngu og hjólaleið, sem er stofnstígur - gerð A í aðalskipulagi. Hjólaleiðin 2,5-3m breið mun þá fylgja legu Álftanesvegar meðfram friðlandinu, aðgreind með vegriði frá akveginum . Gert er ráð fyrir að malbikuð gönguleið í gegnum hraunið sé 3m breið, með 50cm axlir og raflýst með 4m háum ljósastaurum. Lega stígsins er leiðbeinandi og getur hnikast aðeins til á staðnum við nákvæmari útsetningu í samráði við Náttúruverndarstofnun. Þar sem stígurinn myndar gatnamót, er gert ráð fyrir að vinnutæki geti snúið við. Notast skal við nettar vinnuvélar til að lágmarka rask einvörðungu við breidd stígsins. Við upphaf verks skal taka til hliðar gróðursvörð og mosavaxna steina og nýta í síðari frágang meðfram stígnum. Gert er ráð fyrir að malbikuð gönguleið verði framkvæmd fyrst og hjólaleið meðfram Álftanesvegi sé seinni tíma framkvæmd ef á þarf að halda.

Athugasemdir LHM

Fyrirhugað er að leggja nýja malbikaða gönguleið (stofnstígur A) um hraunið norðan við Álftanesveg frá stíg við Hraunsvík að núverandi stíg við Hrauntangaflöt. Á deiliskipulagsuppdrætti virðist missagt í skýringum við kortatákn að þessi stígur eigi að vera 2 m á breidd en fram kemur í greinargerð að stígurinn eigi að vera 3 m á breidd með 50 cm axlir og raflýstur. Ennfremur kemur fram að til framtíðar eigi að leggja annan hjólastíg sem fylgja mun legu Álftanesvegar (reyndar missagt Arnarnesvegar í greinargerð á bls. 32).

Tveir stofnstígar?

Það má alveg velta því fyrir sér hvort ekki sé óþarfi að leggja tvo malbikaða stíga út á Álftanes því sem næst í sömu legu. Væri ekki skynsamlegra að leggja sameiginlegan göngu og hjólastíg, sem væri stofnstígur af gerð A, sem fylgja myndi legu Arnarnesvegar eins og fyrirhugaður hjólastígur og láta nægja að hafa útivistarstíg af gerð A innar í hrauninu eins og gönguleiðin er teiknuð? Sú niðurstaða myndi hugnast LHM vel og hefði þann kost að rask í „óröskuðu“ hrauni væri haldið í lágmarki.

Malbikuð gönguleið.

Ef við höldum okkur samt við núverandi tillögu þarf ný malbikuð gönguleið (stofnstígur  A) að vera eins bein og lítið krókótt og unnt er þar sem hún verður notuð til hjólreiða fyrst um sinn og jafnvel verður þetta eina hjólaleiðin sem lögð verður út á Álftanes eins og fram kemur þar sem segir „ef á þarf að halda“. 

Krókóttir stígar.

Sporin hræða þegar Garðabær og Náttúruverndarstofnun taka höndum saman um að leggja stíga um Garðahraun/Vífilsstaðahraun. Allir stígar sem hafa verið lagðir um Garðahraun fram að þessu austan og vestan við Reykjanesbraut eru of krókóttir, þeir standast ekki alltaf Hönnunarleiðbeiningar fyrir hjólreiðar[1] vegna krappra beygja og stuttra sjónlína, og skapa hættu fyrir notendur. Þeir hafa nú þegar valdið alvarlegum slysum með beinbrotum hjá nokkrum hjólandi vegfarendum þegar snöggfrýs og menn hafa fallið í kröppum beygjum. Það er satt að segja fáránlegt að það skuli vera hægt að eyðileggja stóran hluta Garðahrauns með beinum og breiðum vegum og stórum bílastæðaflæmum en þegar á að leggja stíga fyrir gangandi og hjólandi getur sveitarfélagið og opinber stofnun ekki farið eftir lágmarks hönnunarleiðbeiningum fyrir hjólreiðar til að gera þá örugga. LHM hefur í öllum umsögnum um þessa stíga í hrauninu varað við að hafa þá of krókótta.

Malbikuð hjólaleið.

Fyrirhuguð malbikuð hjólaleið þarf sömuleiðis að vera eins bein og lítið krókótt og unnt er. Lega hjólastígsins er í lagi að mestu en LHM leggur til að krók sem stígurinn tekur niður á Hrauntangaflöt verði sleppt og að hjólastígur haldi áfram samhliða akbraut á brúnni yfir núverandi stíg. Stígarnir verði frekar tengdir með beygju niður á núverandi stíg t.d. vestan megin við brúnna. Þetta er sýnt á meðfylgjandi mynd með blárri línu. Það hefur þann kost að minna af vernduðu hrauni fer undir stíga en ella, stígur verður styttri, auk þess sem sú leið er hentugri fyrir hjólandi umferð.

 

1. mynd. Tillaga að legu hjólastígs samsíða akbraut á Álftanesvegi framhjá Hrauntangaflöt, sýnt með blárri línu.

Útivistarstígur gerð A.

LHM leggur til að malarstígar verði vandlega unnir með brotinni möl úr grágrýti eða blágrýti með ólíkri kornastærð þannig að yfirborð stígsins bindist vel og verði öruggt fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur. Forðast skal að nota þessa venjulegu kringlóttu hraunmöl með einsleitri kornastærð sem binst illa og skilur eftir sig laust yfirborð.

Sáttatorg.

LHM telur að svo kallað Sáttatorg sé óþarft og það hentar líka illa að útbúa áningarstað við þjóðveg. Flestir koma í hraunið til að fá kyrrð en ekki til að hlusta á umferðarnið.

Aðkoma LHM.

LHM óskar eftir því að fá að koma að endanlegri legu stofnstíga A um hraunið.

Samantekt
LHM leggur til eftirfarandi:

  1. Aðeins einn malbikaður stofnstígur A fyrir gangandi og hjólandi verði lagður um hraunið sem fylgja myndi legu Álftanesvegar.
  2. Ef tveir stígar verða ofan á verði stígur með gönguleið um hraunið norðan við Álftanesveg hafður eins beinn og eins lítið krókóttur og hægt er og uppfylli kröfur í „Hönnunarleiðbeiningar fyrir hjólreiðar“.
  3. Stígur með hjólaleið í legu Álftanesvegar verði beinn og eins lítið krókóttur og hægt er og uppfylli kröfur í „Hönnunarleiðbeiningar fyrir hjólreiðar“.
  4. Hjólastígur fylgi legu Álftanesvegar á brú yfir núverandi stíg á Hrauntangaflöt frekar en að taka krók niður á flötina.
  5. Útivistarstígar verði lagðir með brotnu grágrýti eða blágrýti með ólíkri kornastærð svo þeir bindist vel í malarstíg.
  6. Sáttatorgi verði sleppt.
  7. LHM óskar eftir að fá að koma að endanlegri legu stofnstíga A í hrauninu.


Virðingarfyllst

f.h. stjórnar LHM

 

Árni Davíðsson

[1] Hönnunarleiðbeiningar fyrir hjólreiðar. Leiðbeiningar sveitarfélaga höfuðborgarsvæðisins og Vegagerðarinnar 19.12.2019.


Um Landssamtök hjólreiðamanna

Landssamtök hjólreiðamanna ( LHM) eru hagsmunasamtök sem hafa að markmiði m.a. að efla hjólreiðar á Íslandi sem heilsusamlegan lífsmáta og sem samgöngumáta. Öll helstu hjólreiðafélög landsins eiga aðild að LHM. Samtökin eru þó ekki aðeins málsvari félagsmanna hinna ýmsu hjólreiðafélaga sem telja yfir 2000 manns heldur eru þau jafnframt málsvari allra sem hjóla á Íslandi. LHM er aðildarfélag að European Cyclists' Federation, sem eru heildarsamtök fyrir hjólreiðafélög til samgangna og ferðalaga í Evrópu. Aðildarfélög ECF er að finna í flest öllum löndum Evrópu. LHM hlaut samgönguviðurkenningu Reykjavíkurborgar 2012 fyrir virka þátttöku og áhrif í að efla hjólreiðar á Íslandi.

Skoðið þetta

Allir hagnast á samgögnusamningum. Bætt heilsa, færri veikindadagar, skattfrjáls peningur og það bara fyrir að hvíla bílinn?
Samantekt Landssamtaka hjólreiðamanna um gerð samgöngusamninga.
LHM hefur útbúið leiðbeiningar fyrir umferð hjólandi á stígum og gangstéttum og götum. Markmiðið með úgáfu leiðbeininganna er að auka öryggi hjólandi í umferðinni og draga úr núningi milli hjólandi og annara vegfaranda hvort heldur er á stígum eða götum.
Leiðbeiningar LHM um umferð hjólandi á stígum og götum
Sáttmálinn innheldur góð ráð bæði til hjólreiðafólks og atvinnubílstjóra. Hann var gerður í samvinnu Samgöngustofu, Hjólafærni, Vegagerðarinnar, Eflu verkfræðistofu, Hjólaþjálfun (María Ögn), Landsamtaka hjólreiðamanna, Strætó, Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og Reykjavíkurborgar Sáttmáli atvinnubílstjóra og hjólandi vegfarenda
Nú geta einstaklingar gerst aðilar að LHM með einföldum hætti. Nánar hér.