Landssamtök hjólreiðamanna mótmæla eindregið áformum um að endurgera hægri beygju framhjáhlaup frá Bæjarhálsi til norðurs inn á Höfðabakka.
LHM vilja benda á að slík framhjáhlaup skapa hættu fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur: Þegar ökumenn koma inn í svona framhjáhlaup beinist athygli þeirra eðlilega til vinstri til að leita að eyðu í bílaumferð, sem verður til þess að þeir sjá ekki óvarða vegfarendur sem koma frá hægri og sjá jafnvel ekki vegfarendur sem eru beint fyrir framan bílinn þegar þeir taka af stað. Undirritaður lenti í nákvæmlega slíku atviki í dag þegar þetta erindi er ritað, í hægri beygju framhjáhlaupi af Njarðargötu til austurs á Hringbraut. Einungis vegna þess að undirritaður hefur áratuga reynslu af samgönguhjólreiðum og þekkir þau gatnamót vel, var árekstri og slysi afstýrt þegar bílstjórinn var með athyglina annars staðar.
Sérfræðingar COWI lögðust sérstaklega gegn þessari framkvæmd á Bæjarhálsi/Höfðabakka í úttekt sinni fyrir borgina og voru skilaboð þeirra afgerandi: “Do not reinstate slip lane on Bæjarháls”. Það er óskiljanlegt að víkja eigi frá skýrri faglegri ráðgjöf, sérstaklega þegar framkvæmdin eykur slysahættu á gatnamótunum án þess að skila mælanlegum ávinningi fyrir bílaumferðarflæði. LHM skorar því á Umhverfis- og skipulagsráð að hætta við þessa framkvæmd og fylgja þess í stað bestu ráðleggingum sérfræðinga.
Virðingarfyllst
f.h. stjórnar Landssamtaka hjólreiðamanna
Erlendur S. Þorsteinsson
formaður
Teikningar úr umsögn hjá Reykjavíkurborg