Landssamtök hjólreiðamanna (LHM) hafa skoðað skipulagslýsingu um Dalveg 1:
Fyrirhugað er að byggja upp fjölbreytta verslunar- og þjónustustarfsemi á Dalvegi 1. Gerð er breyting á aðal- og deiliskipulagi með það að markmiði að skapa forsendur fyrir endurnýjun svæðisins og uppbyggingu fjölbreyttrar verslunar- og þjónustustarfsemi með sterk tengsl við náttúru- og útivistarsvæði Kópavogsdals í samræmi við heildarsýn fyrir Kópavogsdal.
Samtökin leggja áherslu á að við aðalskipulagsbreytingu og gerð deiliskipulags vegna Dalvegar 1 verði tryggt rými fyrir samfelldan samgönguhjólastíg milli Breiddar í austri og Kópavogshafnar í vestri. Dalvegur 1 gæti orðið Þrándur í Götu ef ekki verður vel að gætt.
LHM vísar vinsamlegast til erindis síns um hjólreiðaáætlun Kópavogsbæjar, sent bænum fyrir rúmu einu og hálfu ári síðan, hinn 22. apríl 2025, málsnúmer 25042730, þar sem m.a. var hvatt til uppbyggingar samgönguhjólastíga meðfram Dalvegi eða í Kópavogsdal. Sú leið myndi tengjast stofnleiðum hjólreiða á höfuðborgarsvæðinu við undirgöng undir Hafnarfjarðarveg við Þinghól og lægi áfram með suðurströnd Kársness að Kópavogshöfn og tengingu við Öldu, brú yfir Fossvog, með því að þræða ströndina vandlega.
Annars vegar þyrfti að skilgreina leið þessa stígs eftir Kópavogsdal eða meðfram Dalvegi og hins vegar þyrfti að tryggja að hann þræði suðurströnd Kársness án hæðarbreytinga. Á skýringarmynd með erindinu var leiðin sýnd um dalinn:

En lega meðfram Dalvegi, almennt dalmegin samhliða götunni, kæmi einnig vel til greina; en þá þyrfti að velja hvernig sá stígur færi framhjá Dalvegi 1 (götumegin eða dalmegin við lóðina) í heildarsamhenginu.
Benda verður á í þessu samhengi að stíg eftir Kópavogsdal, ef það yrði ofan á, yrði að hugsa sem samgönguhjólastíg, í ítarlegu samræmi við leiðbeiningar um hönnun fyrir hjólreiðar, en ekki útivistarstíg. Frá þeim sjónarhóli væri leið samhliða Dalvegi e.t.v. betri kostur en LHM hvetur til þess að þessir kostir báðir verði metnir út frá heildarleiðinni, með áherslu á beina, greiða og örugga leið án óþarfa hæðarbreytinga. Skipulagsvinnan við Dalveg 1 er tilefni til að skýra legu hjólastígsins við þá lóð eða nágrenni hennar í samhengi við alla leiðina sbr. kortið hér að ofan.
LHM hvetur því Kópavogsbæ til að tryggja þegar á þessu stigi að lóðarmörk, byggingarreitir og aðkomur við Dalveg 1 taki mið af rýmisþörf stígsins, sérstaklega ef lega meðfram Dalvegi verður ofan á, og hvetur bæinn einnig til þess að fylgja erindi samtakanna eftir með nýrri hjólreiðaáætlun og tímasettri uppbyggingu leiðarinnar.
Tengsl við hönnunarleiðbeiningar og önnur atriði:
Þegar að því kemur gerir LHM að sjálfsögðu ráð fyrir því að leiðbeiningum um hönnun fyrir hjólreiðar, sem Kópavogsbær er aðili að ásamt öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu og Vegagerðinni, verði ítarlega fylgt við hönnun og gerð þessa stígs á milli Breiddar og Kópavogshafnar, en vill sérstaklega vekja athygli á nokkrum atriðum: Stígar eiga að vera sléttir, beinir, greiðir og án hindrana og óþarfa hæðarbreytinga og hafa verður umferðaröryggismat að leiðarljósi í leiðarvali. Tryggja þarf að lýsing verði nægilega góð, leiðin verði merkt, og að trjá- og runnagróður verði nýttur til að draga úr vindi án þess að skerða stígsýn við gatna- og stígamót.
Virðingarfyllst
F.h. stjórnar Landssamtaka hjólreiðamanna
Erlendur S. Þorsteinsson, formaður