Garðabær - skipulag
https://skipulagsgatt.is/issues/2025/387
Reykjavík 25. ágúst 2026
Umsagnarnefnd Landssamtaka hjólreiðamanna (LHM) hefur skoðað tillögu þar sem gert er fyrir að breyting sé gerð á ákvæðum sem ná til stígakerfa í 4. kafla aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030. Viðfangsefni breytingartillögunnar er heildarendurskoðun á stígakerfi Garðabæjar og er áætluninni ætlað að vera til leiðbeiningar fyrir deiliskipulagsgerð, verkhönnun og uppbyggingu stíga í Garðabæ til framtíðar. Markmiðið er að til verði stefna um vistvænar samgöngur og uppbyggingu stígakerfisins í þágu útivistar og lýðheilsu og umhverfisverndar, með öryggi að leiðarljósi.
LHM eru jákvæð í garð þessarar tillögu um breytingu á aðalskipulagi, sem felur í sér heildarendurskoðun á stígakerfi Garðabæjar. Samtökin eru þó með nokkrar athugasemdir við tillöguna sem koma hér að neðan.
LHM vilja jafnframt leggja til að þetta tækifæri verði notað af sveitarfélaginu til að setja sér hjólreiðaáætlun eða áætlun um virkar samgöngur. Í slíkri áætlun ætti að felast stefnumótun um hlutdeild virkra ferðamáta, stefna um gerð stíga og um gerð hjólastæða við vinnustaði og skóla, samgöngusamningar með samgöngugreiðslum fyrir starfsmenn og stefna um breytt hugarfar til að hvetja til breyttra ferðavenja. Fjármögnun ætti að vera hluti af áætluninni.
Athugasemdir LHM.
Stofnstígar gerð A meðfram Reykjanesbraut.
Lega stígs meðfram Reykjanesbraut er sýnd í vegstæði frá Vífilsstaðavegi að Hafnarfirði (1. mynd, blá ör). Óvíst er hvort þessi stígur verði lagður þarna og vandséð hvernig á að leysa vandamál tengd umferðarhávaða og loftmengun frá umferð. Að mati LHM misstu menn af gullnu tækifæri til að leggja nothæfan samgöngustíg yfir Vífilsstaðahraun austan Reykjanesbrautar sem hefði leyst hlutverk þessa stígs. Núna stendur eftir að það vantar samgöngustíg á þessum kafla.
Krókóttir stofnstígar i Garðahrauni/Vífilsstaðahrauni.
Stofnstígar yfir Garðahraun/Vífilsstaðahraun eru almennt of krókóttir eins og sjá má af uppdrætti (1. mynd, grænar örvar). LHM hefur ítrekað mælt með lagningu beinni stiga yfir Garðahraun á fundum og í umsögnum en af einhverjum ástæðum hafa yfirvöld (Garðabær, Vegagerðin og Náttúruverndarstofnun) þráast við og búið til krókótta stíga jafnvel þótt það þýði lengri stíga og að meira af vernduðu hrauni fari undir stígana. Stígarnir standast ekki alltaf Hönnunarleiðbeiningar fyrir hjólreiðar[1] vegna krappra beygja og stuttra sjónlína, og skapa hættu fyrir notendur. Þeir hafa nú þegar valdið alvarlegum slysum með beinbrotum hjá nokkrum hjólandi vegfarendum þegar snöggfrýs og menn hafa fallið í kröppum beygjum, sem mátti sjá fyrir.
Stígur um Leirdalsop
Skilgreindur hefur verið stofnstígur A/B um Leirdalsop (1. mynd, fjólublá ör). Hann er hinsvegar ennþá krókóttur með kröppum beygjum. Hann þarf að uppfylla kröfur í „Hönnunarleiðbeiningar fyrir hjólreiðar“ og vera beinni.

1. mynd. Skýringar við athugasemdir hér að framan. Stofnstígar gerð A meðfram Reykjanesbraut 1-blá ör. Krókóttir stofnstígar i Garðahrauni/Vífilsstaðahrauni 2-grænar örvar. Stígur um Leirdalsop 3-fjólublá ör.
Útivistarstígur frá Heiðmerkurvegi að Guðmundarlundi
Óljóst er hvernig á að tengja Heiðmerkurveg í Vífilsstaðahlíð við Guðmundarlund í Kópavogi. Útivistarstígur sem er teiknaður frá Hjöllum að Kjóavöllum mun ólíklega ná að gegna því hlutverki og kannski líður langur tími áður en hann verður lagður. Leiðin þarf að vera þannig úr garði gerð að hún sé fær bæði fyrir hjólandi og gangandi og vera örugg fyrir hvoru tveggju. Eins og sakir standa er reiðleiðin sett á línuveginn sem flestir nota til að komast þarna yfir gangandi, ríðandi og hjólandi. LHM óskar eftir því að örugg tenging með útivistarstíg verði gerð þarna á milli sem hentar sem aðkomuleið fyrir hjólandi. Skynsamlegt gæti verið að halda línuveginum sem aðkomuvegi hjólandi og gangandi að útivistarsvæðum og hafa sérstakan reiðstíg til hliðar við línuveginn (2. mynd).
2. mynd. Tillaga að legu útivistarstígs sem gegnir hlutverki aðkomuleiðar fyrir hjólandi (rauð lína). Í svipaðri legu og línuvegurinn frá Heiðmerkurvegi að Guðmundarlundi.
Fjallahjólabraut í Vífilsstaðahlíð
Í Vífilsstaðahlíð er fjallahjólabraut sem þarf að hafa góða aðkomu fyrir hjólandi (3. mynd). Hana þarf væntanlega að skilgreina sem íþróttasvæði í aðalskipulagi í samráði við félög fjallahjólara.
Útivistarstígar gerð A og B.
LHM leggur til að malarstígar verði vandlega unnir með brotinni möl og sandi úr grágrýti eða blágrýti með ólíkri kornastærð þannig að yfirborð stíga bindist vel og verði öruggt fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur. Forðast skal að nota þessa venjulegu kringlóttu hraunmöl með einsleitri kornastærð sem binst illa, skilur eftir sig laust yfirborð og dreifir lausum steinum út frá sér.
3. mynd. Fjallahjólabraut í Vífilsstaðahlíð notar línuveg sem aðkomuleið.
Aðkoma LHM
LHM óskar eftir því að fá að koma að endanlegri legu stofnstíga og útivistarstíga.
Virðingarfyllst
f.h. stjórnar LHM
Árni Davíðsson
Um Landssamtök hjólreiðamanna
Landssamtök hjólreiðamanna ( LHM) eru hagsmunasamtök sem hafa að markmiði m.a. að efla hjólreiðar á Íslandi sem heilsusamlegan lífsmáta og sem samgöngumáta. Öll helstu hjólreiðafélög landsins eiga aðild að LHM. Samtökin eru þó ekki aðeins málsvari félagsmanna hinna ýmsu hjólreiðafélaga sem telja yfir 2000 manns heldur eru þau jafnframt málsvari allra sem hjóla á Íslandi. LHM er aðildarfélag að European Cyclists' Federation, sem eru heildarsamtök fyrir hjólreiðafélög til samgangna og ferðalaga í Evrópu. Aðildarfélög ECF er að finna í flest öllum löndum Evrópu. LHM hlaut samgönguviðurkenningu Reykjavíkurborgar 2012 fyrir virka þátttöku og áhrif í að efla hjólreiðar á Íslandi.