Leiðbeiningar LHM um umferð hjólandi á stígum og götum, 1. úgáfa.
Samþykkt á fundi stjórnar LHM 2. maí 2012.
Leiðbeiningar LHM fyrir hjólandi á stígum og gangstéttum með blandaðri umferð.
- Sýnum öðrum ávallt tillitsemi og aðgát.
- Gangandi vegfarendur hafa forgang.
- Stillum hraðanum í hóf á stígunum þeir eru oftast hannaðir fyrir hæga gangandi umferð með blindhornum og kröppum beygjum.
- Höfum almennt í huga hægri regluna - höldum okkur til hægri og förum framúr vinstra megin.
- Förum varlega framúr öðrum og gefum tímanlega kurteislegt hljóðmerki með bjöllu.
- Víkjum til hægri fyrir þeim sem vilja komast framúr þegar það er öruggt.
- Högum hraða ávallt miðað við aðstæður og sýn fram á stíg.
- Notum góð ljós þegar rökkvar og gætum þess að vera sýnileg.
- Lítum aftur og gætum að umferð og gefum skýr merki með höndum ef við á áður en við beygjum, breytum stöðu á stíg eða hægjum á ferð.
- Veitum ökutækjum sérstaka aðgát þegar stígur liggur yfir götu.
Leiðbeiningar LHM fyrir hjólandi á götum með 50 km hraða eða minna.
- Fylgjum ávallt umferðarlögum. Sýnum öðrum ávallt tillitsemi og aðgát. Notum góð ljós þegar rökkvar og gætum þess að vera sýnileg.
- Höldum okkur að lágmarki um 1 metra frá hægri kanti eða kyrrstæðum bifreiðum.
- Fylgjum umferðarstraumnum og breytum ekki um stefnu öðrum að óvörum.
- Gefum skýr merki með höndum ef við á áður en við beygjum, breytum stöðu á akrein eða hægjum á ferð.
- Við eftirfarandi aðstæður ætti hjólandi við flestar kringumstæður að taka víkjandi stöðu á akbraut, sem er um 1 meter hægra megin við umferðarstraum en varla nær akbrautarbrún en um 1 meter:
- þegar nægilegt pláss er fyrir akstur bíls og reiðhjóls hlið við hlið,
- þegar langt er milli gatnamóta eða innkeyrslna,
- til að hleypa bílum framúr.
- Við eftirfarandi kringumstæður ættu hjólandi þó að taka ríkjandi stöðu á miðri akrein:
- þegar ekki er nægilegt pláss fyrir bíl að fara framúr, s.s. í þrengingum,
- við gatnamót, í beygjum og í hringtorgum,
- þegar farið er framhjá bílum sem gætu óvænt ekið í veg fyrir hjólandi svo sem við innkeyrslur og bílastæði.
- Lítum aftur og gætum að umferð áður en:
- ríkjandi staða er tekin á akrein,
- áður en skipt er um akrein,
- áður en beygt er til vinstri eða hægri.
- Fara skal fram úr vinstra megin að öllu jöfnu. Reiðhjólum er leyfilegt að fara framúr vélknúnum ökutækjum hægra megin en það þarf að gerast með varúð.
- Gæta skal að löngum ökutækjum, varasamt er að vera hægra megin við þau ef mögulegt er að þau beygi til hægri.
- Hjólandi á akbraut ber að veita umferð gangandi og hjólandi forgang á gangstétt eða gangstíg.
Hér eru þessar leiðbeiningar á pdf formi