Samgönguhjólreiðar á laugardagsmorgnum frá Hlemmi

Hjólað á Hverfisgötu3Nú á vormánuðum 2011 verður haldið áfram með hjólreiðaferðir frá Hlemmi á laugardagsmorgnum. Að þeim standa Landssamtök hjólreiðamanna og verkefnið Hjólafærni. Fyrir-hjólari flesta laugardaga verður Árni Davíðsson hjólafærnikennari og formaður Landssamtaka hjólreiðamanna. Fyrsta ferðin var farinn laugardaginn 25. september 2010 en sú fyrsta eftir áramót og 11. í röðinni verður farinn laugardaginn 5. febrúar 2011. Síðan verður farið hvern laugardag fram á vor. Vikulegar upplýsingar birtast á Facebook undir hópnum Samgönguhjólreiðar.

Mæting er milli 10:00 og 10:15 og er hjólað af stað kl. 10:15.  Hjólaðar eru mismunandi leiðir um borgina og höfuðborgarsvæðið eftir rólegum götum í 1-2 tíma. Markmiðið er að hittast og sjá og læra af öðrum hjólreiðamönnum hversu auðvelt er að hjóla í borginni. Þeir sem vilja geta endað ferðina á kaffihúsi. Þessar ferðir eru ekki ósvipaðar þriðjudagskvöldferðum Fjallahjólaklúbbsins á sumrin en áherslan er hér á samgönguhjólreiðar í borginni og mikið lagt upp úr spjalli og rólegri ferð.

Þetta er ókeypis og allir velkomnir. Allir sem kunna að hjóla eiga að geta tekið þátt. Meðalhraði fer eftir hægasta manni en ætti oftast að vera á bilinu 10-20 km/klst. Þegar vetrar og dimmir þarf að gera ráð fyrir hlýjum og skjólgóðum fatnaði og að hafa ljós að framan og aftan. Í hálku er öryggi í nagladekkjum á hjólinu. Auðvelt er að taka strætó á Hlemm með hjólið á laugardögum, áætlun strætó er á www.straeto.is .

Fyrirvari er um að menn hjóla á eigin ábyrgð að öllu leyti.

Ef menn vilja bæta öryggi sitt á hjólinu og fá kennslu í samgönguhjólreiðum er hægt að óska eftir kennslu á öðrum tímum. Hjólaafærni veitir margháttaða þjónustu sem hægt er að kynna sér á vefnum www.hjólafærni.is eða í símum 862 9247 og 864 2776. Kennsla hjólafærni nær allt frá því að læra að hjóla og uppí samgönguhjólreiðar á 3. stigi bresku hjólanámskrárinnar.

Frekari upplýsingar má fá í síma eða í tölvupósti og sömuleiðis má láta vita af þátttöku í laugardagsferð.

Árni Davíðsson
s. 862 9247
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Sesselja Traustadóttir
s: 864 2776
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Hjólað á Hverfisgötu4

Skoðið þetta

Allir hagnast á samgögnusamningum. Bætt heilsa, færri veikindadagar, skattfrjáls peningur og það bara fyrir að hvíla bílinn?
Samantekt Landssamtaka hjólreiðamanna um gerð samgöngusamninga.
LHM hefur útbúið leiðbeiningar fyrir umferð hjólandi á stígum og gangstéttum og götum. Markmiðið með úgáfu leiðbeininganna er að auka öryggi hjólandi í umferðinni og draga úr núningi milli hjólandi og annara vegfaranda hvort heldur er á stígum eða götum.
Leiðbeiningar LHM um umferð hjólandi á stígum og götum
Sáttmálinn innheldur góð ráð bæði til hjólreiðafólks og atvinnubílstjóra. Hann var gerður í samvinnu Samgöngustofu, Hjólafærni, Vegagerðarinnar, Eflu verkfræðistofu, Hjólaþjálfun (María Ögn), Landsamtaka hjólreiðamanna, Strætó, Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og Reykjavíkurborgar Sáttmáli atvinnubílstjóra og hjólandi vegfarenda
Nú geta einstaklingar gerst aðilar að LHM með einföldum hætti. Nánar hér.

Nýjustu umsagnir LHM og önnur skjöl