Ályktun stjórnar LHM varðandi skýrslu RSNA um banaslys í Ártúnsbrekku 21. desember 2015.

Rannsóknarnefnd samgönguslysa (RNSA) birti 15. mars skýrslu um fyrsta banaslys hjólreiðamanns í 18 ár. Slysið varð 21. desember 2015 þegar ekið var aftan á hjólreiðamann á Vesturlandsvegi vestan Höfðabakka. Hjólreiðamaðurinn var vel útbúinn umfram kröfur laga og reglugerða. Útsýni var gott og lýsing með besta móti. Ekkert hefði átt að hindra ökumanninn í að sjá fram á veginn og varast slys. Bílstjórinn ók yfir lögmætum hámarkshraða sem bæði minnkar þann tíma sem hann hefur til að bregðast við hættum framundan og eykur líkur á alvarlegum meiðslum eða dauðsfalli við árekstur. Að auki voru þrír hlutir við framrúðu ökumanns sem trufluðu útsýni hans auk þess sem hann hafði verið á langri næturvakt.

Stjórn Landssamtaka hjólreiðamanna furðar sig á ýmsum atriðum í skýrslu RNSA sem snúa að hjólreiðamanninum. Talað er um að ekki hafi verið bakvísandi spegill á hjólinu og að hann hafi verið með, til viðbótar lágmarks lögboðnum útbúnaði, endurskin þar sem það lendir ekki í ljósgeisla bifreiða og að neonlitur á fatnaði auki ekki sýnileika við þessi birtuskilyrði. Ekkert af þessu er lögboðið né aðfinnsluvert. Ekkert af þessu er að finna í drögum að nýrri reglugerð um gerð og búnað reiðhjóla. Ólíklegt er að þetta hafi skipt máli fyrir orsök slyssins. Jafnframt er ekki fjallað um þann lögboðna búnað sem var á hjólinu og skiptir mestu máli fyrir sýnileika hjólreiðamanns aftanfrá, ljós að aftan og glitaugu í fótstigum.

Því er haldið fram að hjólreiðamaður hafi ekki gætt nægilegrar aðgæslu með því að hjóla á veginum. Þessi fullyrðing er með ólíkindum. Vegurinn er lögboðin leið hjólandi a.m.k. meðan ekki er boðið upp á stíg meðfram þessari leið. Eitt helsta baráttumál Landssamtaka hjólreiðamanna frá upphafi er einmitt að slíkar stígar verði í boði meðfram öllum stofnbrautum. Hjólreiðamaðurinn hafði valið þessa leið vegna þess að aðrar leiðir á stígum voru ófærar. Vegurinn er margar akreinar og umferð á þessum tíma er mjög lítil og lýsing á veginum það góð að ökumaður á auðvelt með að sjá það sem framundan er.

Með vísan í erlendar reglur um hraðbrautir „motorway“ beinir RNSA „þeirri tillögu til Innanríkisráðuneytisins að taka til skoðunar að hjólreiðar verði bannaðar á fjölakreinavegum í þéttbýli þar sem umferðarþungi og hraði er mikill“. Hraðbrautir hafa ekki verið leiddar í lög á Íslandi og er það okkar skilningur að ekki sé hægt að banna för hjólandi um vegi landsins með þeim hætti sem væri gert á hraðbrautum nema fyrst verði boðið upp á sambærilegar leiðir fyrir hjólandi. Ef hentugir stígar liggja meðfram stofnbrautum er sjálfgefið að fólk hjólar þar. Til þess þarf engin boð né bönn.

Ítarlega greinargerð Landssamtaka hjólreiðamanna um þetta slys í Ártúnsbrekku 21. desember 2015 og skýrslu RNSA um það má lesa hér: Greinargerd LHM vegna slyss í Ártúnsbrekku 21. desember 2015

Fyrir hönd stjórnar Landssamtaka hjólreiðamanna,
Ásbjörn Ólafsson, formaður LHM

Landssamtök hjólreiðamanna

Skoðið þetta

Allir hagnast á samgögnusamningum. Bætt heilsa, færri veikindadagar, skattfrjáls peningur og það bara fyrir að hvíla bílinn?
Samantekt Landssamtaka hjólreiðamanna um gerð samgöngusamninga.
LHM hefur útbúið leiðbeiningar fyrir umferð hjólandi á stígum og gangstéttum og götum. Markmiðið með úgáfu leiðbeininganna er að auka öryggi hjólandi í umferðinni og draga úr núningi milli hjólandi og annara vegfaranda hvort heldur er á stígum eða götum.
Leiðbeiningar LHM um umferð hjólandi á stígum og götum
Sáttmálinn innheldur góð ráð bæði til hjólreiðafólks og atvinnubílstjóra. Hann var gerður í samvinnu Samgöngustofu, Hjólafærni, Vegagerðarinnar, Eflu verkfræðistofu, Hjólaþjálfun (María Ögn), Landsamtaka hjólreiðamanna, Strætó, Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og Reykjavíkurborgar Sáttmáli atvinnubílstjóra og hjólandi vegfarenda
Nú geta einstaklingar gerst aðilar að LHM með einföldum hætti. Nánar hér.

Nýjustu umsagnir LHM og önnur skjöl