Gagnasafn með og á móti lögleiðingu reiðhjólahjálma

Til viðbótar efninu sem vísað er á hér fyrir neðan má nefna ítarlegar samantektir um málið í athugasemdum LHM við drög að nýjum umferðarlög 2008 og 2009. Sjá nánar í greinasafni okkar og styttri samantekt í þessari greininni "Um reiðhjólahjálma – skyldunotkun eða frjálst val ?" sem birtist á vef ÍFHK sem er aðildarfélag LHM. -PG


Á haustmánuðum 2004 lögðu Samtök tryggingafélag fram tillögu þess efnis í Umferðarráði að lögleiða reiðhjólahjálma á alla aldurshópa. Var það byggt á gögnum um fjölda slasaðra barna sem nú þegar eiga að bera hjálma samkvæmt lögum upp að 15 ára aldri. Af því tilefni var ákveðið að safna öllum rökum með og á móti hér á einum stað svo allir geti kynnt sér efnið með auðveldum hætti. Er það gert vegna þess að rökin með hjálmaskyldu eru ekki eins augljós og halda mætti í fyrstu. Því miður þá mæltu allir nema tveir fulltrúar Umferðarráðs með tillögu tryggingafélagana. Líklega án þess að hafa kynnt sér gögn Landssamtaka hjólreiðamanna, enda báru flestir fyrir sig persónuleg rök fremur en fagleg. Landssamtökin líta svo á að hér sé um að ræða aðför gegn hjólreiðum á Íslandi. Byggist það á sömu rökum sem bæði Danir og Hollendingar hafa stust við, að hjálmaskylda fækki þeim sem ástunda heilsusamlegar og vistvænar samgöngur. Kostnaður samfélagsins og heilsutjón almennings verður því meiri en það heilsutjón sem höfðumeisli hjálmlausra hjólreiðamanna valda. Fyrir hönd Landssamtaka hjólreiðamanna hefur Morten Lange lagt á sig mikla vinnu til að kynna sér rökin með og á móti. Það fór því svo að á Velo-City ráðstefnuni í Dublin var hann fengin í starfshóp á vegum ECF sem fjallar um hjálma og hjálmaskyldu hjólreiðamanna.

 

Hér má sjá gagnasafn Mortens Lange sem hann notaði á fundum umferðarráðs og samgönguráðuneytis. Í málflutningi flestra fulltrúa Umferðarráðs benti allt til þess að menn hefðu ekki kynnt sér gögn Mortens Lange því flestir virtust vera búnir að ákveða niðurstöðuna fyrirfram.  Sjá lika blogg Mortens Lange

 

2. maí 2005 sendi Magnús Bergsson tölvupóst með minnispuntum og spurningum til Umferðarráðs. Spurningunum var ekki svarað.

 

Sjáið MBL brein frá því 12. september 2006. "Ökumenn taka minna tillit til hjólreiðamanna með hjálm"

 

Eftir að Motren Lange sást bregða fyrir hjálmlaus í sjónvarpi 21. september 2006 þá kom upp umræða á korki HFR og vefspjalli ÍFHK

Skoðið þetta

Allir hagnast á samgögnusamningum. Bætt heilsa, færri veikindadagar, skattfrjáls peningur og það bara fyrir að hvíla bílinn?
Samantekt Landssamtaka hjólreiðamanna um gerð samgöngusamninga.
LHM hefur útbúið leiðbeiningar fyrir umferð hjólandi á stígum og gangstéttum og götum. Markmiðið með úgáfu leiðbeininganna er að auka öryggi hjólandi í umferðinni og draga úr núningi milli hjólandi og annara vegfaranda hvort heldur er á stígum eða götum.
Leiðbeiningar LHM um umferð hjólandi á stígum og götum
Sáttmálinn innheldur góð ráð bæði til hjólreiðafólks og atvinnubílstjóra. Hann var gerður í samvinnu Samgöngustofu, Hjólafærni, Vegagerðarinnar, Eflu verkfræðistofu, Hjólaþjálfun (María Ögn), Landsamtaka hjólreiðamanna, Strætó, Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og Reykjavíkurborgar Sáttmáli atvinnubílstjóra og hjólandi vegfarenda
Nú geta einstaklingar gerst aðilar að LHM með einföldum hætti. Nánar hér.

Nýjustu umsagnir LHM og önnur skjöl