Markmið og verkefni LHM

Vinnuskjal samþykkt á stjórnasrfundi í mars 1998 og endurskoðað á málþingi í febrúar 2008

Markmið samkvæmt lögum félagsins:

"Efla hjólreiðar á Íslandi. Samtökin skulu útbreiða og efla hjólreiðar sem keppnisíþrótt, fjölskylduvæna almenningsíþrótt, heilsusamlegan lífsmáta og einnig sem samgöngutæki. Samtökin beita sér af því tilefni fyrir margvíslegu íþróttastarfi meðal einstaklinga, hópa t.d.á vinnustöðum og standa fyrir hverskonar fræðslu- og kynningarstarfsemi í samstarfi við félög og áhugafólk á öllum aldri."

Enn fremur leggja áherslu á:

-að verði bætt samgöngukerfi fyrir hjólreiðafólk

-að verði aukið öryggi hjólreiðarmanna í umferðinni.

-að hjólreiðar verði kynntar sem samgöngumáti.

-að samtök hjólreiðamanna fái aðild að ÍSÍ

Verkefni:

- Samskipti við löggjafann.

- Samskipti við Umferðarráð.

- Stuðla að bættum samgönguleiðum fyrir hjólreiðamenn milli sveitafélaga.

- Almannaréttur.

- Fjáröflun.

- Kynningar og útgáfumál.

- Umferðaröryggi.

- Samskipti við ÍTR, ÍSÍ, Íþróttir fyrir alla o.s.frv.

- Samskipti við hjólreiðafélögin ÍFHK og HFR sem og önnur hjólreiðafélög

- Samskipti við erlenda aðila sem starfa á sama vettvangi.

- Stuðla að stofnun fleiri samtaka og félaga hjólreiðamanna í landinu og endurvekja eldri félög

- Skjalasafn samtakanna.

- Safna skýrslum um slys sem hjólreiðamenn lenda í

- Safna saman lögum og reglugerðum sem varða hjólreiðamenn.

- Vegalög og vegagerðarstaðlar

- Kynningar og auglýsingar í fjölmiðlum.

- Bætt umferðarsiðferði hjólreiðamanna.

- Skilti á göngu og hjólreiðastígum

 

-Samskipti við löggjafann.

Efla kynningu á málefnum hjólreiðamanna meðal þingmanna svo að hjólreiðabrautir komist í vegalög.

-Umferðarráð.

Samtökin taki þátt í starfi umferðarráðs og kynni þar málefni hjólreiðamanna.

-Stuðla að bættum samgöngleiðum hjólreiðamanna milli sveitafélaga.

Taka upp samvinnu við Vegagerð ríkisins um bættar samgönguleiðir hjólreiðamanna milli staða:
Hafnarfjörður - Reykjavík - Mosfellsbær
Akranes - Borgarnes - Stykkishólmur
Patreksfjörður - Þingeyri - Ísafjörður
Borgarnes - Akureyri
Mývatn - Húsavík - Raufarhöfn - Vopnafjörður
Egilsstaðir - Seyðisfjörður - Reyðarfjörður - Höfn
Kirkjubæjarklaustur - Vík í Mýrdal - Hvolsvöllur - Selfoss - Hveragerði
Grindavík - Keflavík - Njarðvík
Keflavík - Reykjavík - Hveragerði

-Almannaréttur.

Vinna að því að endurskoðuð verði lög um umferð almennings um landareignir og almenninga.  Hafa mætti samstarf við Ferðafélag Íslands, Landssamtök stangveiðimanna, Útivist og fleiri og heyra álit þeirra á þessu máli.

-Fjáröflun.

Afla samtökunum rekstrartekna t.d. með útgáfu árbókar að vori með aðstoð hjólreiðaverslana, styrkjum frá ríki og sveitarfélögum eða öðrum.

-Kynningar og útgáfumál.

Hvers kyns kynning á hjólreiðum og samtökunum í fjölmiðlum. Birta grein í hverjum Hjólhesti sem kemur út.

-Umferðaröryggi .

Hvaða lög gilda um reiðhjól og hjólreiðar barna og fullorðina? Hvetja lögreglu til eftirlits á reiðhjólum?
Efla fræðslu meðal almennings um ljósanotkun.Virkja skólakerfið til að taka upp verkefnið "Hjólafærni"..

-Samskipti við ÍTR, ÍSÍ, Íþróttir fyrir alla o.s.frv.

Efla samvinnu við sem flest félagsamtök og stofnanir sem vinna að íþróttum, útivist og félagsmálum.

-Samskipti við aðildarfélög LHM

Kynna starfið fyrir félögunum t.d. í Hjólhestinum, Umhverfisnefnd  ÍFHK og fréttabréfi HFR

-Skjalasafn samtakanna.

Varðveita og flokka skjölog önnur gögn, svo það nýtist í starfi LHM í framtíðinni.

-Safna skýrslum um slys sem hjólreiðamenn lenda í.

 

ATH :

Vorið 2008 voru markmið um að rekja áróðri fyrir hjálmanotkun og þvinga alla með reglugerð til að vera með hjálm tekin út.
Forsagan var viðamikill þekkingaröflun og samráð við fagaðila bæði hér heima sem og erlendis. Þannig var gerð hlutlæg úttekt á gagnsemi lögboðs og virkni hjálma. Stefnubreytingin sem varð á árunum 2005-2006, var staðfest á málþingi snemma ársins 2008 og á ársþingi 2008. Ein útkoma úr málfundi LHM og ÍFHK í janúar 2008 um stefnumótun var skjalið Brýnustu aðgerðir í málefnum hjólreiðamanna

Skoðið þetta

Allir hagnast á samgögnusamningum. Bætt heilsa, færri veikindadagar, skattfrjáls peningur og það bara fyrir að hvíla bílinn?
Samantekt Landssamtaka hjólreiðamanna um gerð samgöngusamninga.
LHM hefur útbúið leiðbeiningar fyrir umferð hjólandi á stígum og gangstéttum og götum. Markmiðið með úgáfu leiðbeininganna er að auka öryggi hjólandi í umferðinni og draga úr núningi milli hjólandi og annara vegfaranda hvort heldur er á stígum eða götum.
Leiðbeiningar LHM um umferð hjólandi á stígum og götum
Sáttmálinn innheldur góð ráð bæði til hjólreiðafólks og atvinnubílstjóra. Hann var gerður í samvinnu Samgöngustofu, Hjólafærni, Vegagerðarinnar, Eflu verkfræðistofu, Hjólaþjálfun (María Ögn), Landsamtaka hjólreiðamanna, Strætó, Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og Reykjavíkurborgar Sáttmáli atvinnubílstjóra og hjólandi vegfarenda
Nú geta einstaklingar gerst aðilar að LHM með einföldum hætti. Nánar hér.

Nýjustu umsagnir LHM og önnur skjöl