Setjum ljós á hjólin

santaLandssamtök hjólreiðamanna eru í samstarfi við Umferðarstofu um að vekja athygli á mikilvægi ljósa núna þegar haustar að og fer að rökkva. Hjólabúðirnar ætla að vera með lækkað verð á ljósum og tryggingafélögin ætla að gefa ljós. Af þessu tilefni birtum við hér fréttatilkynningu frá Umferðarstofu:

 

Núna þegar skammdegið grúfir yfir er rétt að huga að því hvernig við getum best séð hvert annað í umferðinni.  Það á ekki síst við um hjólreiðamenn, en þeim hefur fjölgað umtalsvert á undanförnum misserum.  Þeir deila meðal annars víða göngustígum með gangandi fólki og því er mikilvægt að þeir séu sýnilegir. Umferðarstofa hefur þess vegna ákveðið í samstarfi við söluaðila reiðhjóla og tryggingafélög og í samráði við Landssamtök hjólreiðamanna  að hvetja til ljósanotkunar.  

Markmiðið er að allir hjólreiðamenn séu með ljós á hjólum sínum.  Til að auðvelda þetta hafa flestir söluaðilar ákveðið að veita afslátt á bilinu 15 – 25% af  ljósum fyrir reiðhjól næstu daga.  Jafnframt hyggjast tryggingafélög gefa hópi hjólreiðamanna ljós til að auka sýnileika þeirra og öryggi.  Þess má geta að lögregla er þessa dagana með sérstakt eftirlit með ljósabúnaði ökutækja.

Verslanirnar eru:

  • GÁP í Faxafeni 7, Reykjavík,
  • Hjólasprettur í Dalshrauni 13, Hafnarfirði,
  • Hvellur á Smiðjuvegi 30, Kópavogi, 
  • Markið í Ármúla 40, Reykjavík, 
  • Örninn í Faxafeni 8, Reykjavík, 
  • Útilíf í Holtagörðum  í Reykjavík
  • Krían á Grandagarði 7 í Reykjavík.  

Vonandi eykur þetta ágæta framtak verslana og tryggingarfélaga líkur á að hjólreiðamenn eignist góð ljós í þágu öryggis. Þess skal að lokum getið að um gerð og búnað reiðhjóla gilda eftirfarandi reglur:

Reiðhjól skal búið rauðu þríhliða glitmerki að aftan og hvítu að framan.  Á báðum hliðum fótstigs skulu vera hvít eða gul glitmerki. Gul eða hvít glitmerki skulu vera í teinum hjólsins. Reiðhjól sem notað er í myrkri eða skertu skyggni skal búið ljóskeri að framan sem lýsir hvítu eða gulu ljósi og ljóskeri að
aftan sem lýsir rauðu ljósi. Ljóskerin skulu vera fest við hjólið.
Ljóskerið að framan skal lýsa nægilega vel án þess að valda glýju.

Frekari upplýsingar veita Einar Magnús Magnússon, sími 580-2022 og Sigurður Helgason, sími 58020-21 og 8990160

Skoðið þetta

Allir hagnast á samgögnusamningum. Bætt heilsa, færri veikindadagar, skattfrjáls peningur og það bara fyrir að hvíla bílinn?
Samantekt Landssamtaka hjólreiðamanna um gerð samgöngusamninga.
LHM hefur útbúið leiðbeiningar fyrir umferð hjólandi á stígum og gangstéttum og götum. Markmiðið með úgáfu leiðbeininganna er að auka öryggi hjólandi í umferðinni og draga úr núningi milli hjólandi og annara vegfaranda hvort heldur er á stígum eða götum.
Leiðbeiningar LHM um umferð hjólandi á stígum og götum
Sáttmálinn innheldur góð ráð bæði til hjólreiðafólks og atvinnubílstjóra. Hann var gerður í samvinnu Samgöngustofu, Hjólafærni, Vegagerðarinnar, Eflu verkfræðistofu, Hjólaþjálfun (María Ögn), Landsamtaka hjólreiðamanna, Strætó, Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og Reykjavíkurborgar Sáttmáli atvinnubílstjóra og hjólandi vegfarenda
Nú geta einstaklingar gerst aðilar að LHM með einföldum hætti. Nánar hér.

Nýjustu umsagnir LHM og önnur skjöl