Göngu- og hjólastígar um Ásbraut

Umsögn LHM um:
Göngu- og hjólastígar um Ásbraut

Landssamtök hjólreiðamanna (LHM) hafa skoðað lýsingu skipulagsverkefnis (skipulagslýsingu) vegna nýs deiliskipulags Ásbrautar. Skipulagssvæðið nær yfir fjölbýlishúsalóðir 3-21 og göturými við Ásbraut. Markmið með deiliskipulagsvinnunni að endurhanna göturými Ásbrautar til að bæta stígakerfi og tryggja með samræmdum hætti örugga og greiða umferð gangandi og hjólandi vegfarenda.

LHM er almennt hlynnt þeim hugmyndum sem sem koma fram í skipulagslýsingunni. Með þeim skapast tækifæri til að auka öryggi hjólandi og gangandi umferðar og gera leið
þeirra greiðari, skilvirkari og vistlegri. Á þessu stigi í ferlinu vill LHM helst koma að tveimur almennum ábendingum: Annars vegar um nauðsyn þess að horfa á allar tegundir lausna við hönnun fyrir hjólreiðar sem samgöngumáta um Ásbraut og hins vegar um tengsl við önnur verkefni á Kársnesi og Fossvogi.

Sjá nánar í umsögn LHM.

Skoðið þetta

Allir hagnast á samgögnusamningum. Bætt heilsa, færri veikindadagar, skattfrjáls peningur og það bara fyrir að hvíla bílinn?
Samantekt Landssamtaka hjólreiðamanna um gerð samgöngusamninga.
LHM hefur útbúið leiðbeiningar fyrir umferð hjólandi á stígum og gangstéttum og götum. Markmiðið með úgáfu leiðbeininganna er að auka öryggi hjólandi í umferðinni og draga úr núningi milli hjólandi og annara vegfaranda hvort heldur er á stígum eða götum.
Leiðbeiningar LHM um umferð hjólandi á stígum og götum
Sáttmálinn innheldur góð ráð bæði til hjólreiðafólks og atvinnubílstjóra. Hann var gerður í samvinnu Samgöngustofu, Hjólafærni, Vegagerðarinnar, Eflu verkfræðistofu, Hjólaþjálfun (María Ögn), Landsamtaka hjólreiðamanna, Strætó, Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og Reykjavíkurborgar Sáttmáli atvinnubílstjóra og hjólandi vegfarenda
Nú geta einstaklingar gerst aðilar að LHM með einföldum hætti. Nánar hér.