Í Reykjavík byrjar dagurinn kl. 14 með fjölda-hjólreiðatúr frá Austurvelli og upp Hverfisgötu að Hlemmi. Þar verður boðið upp á stutta kynningu á Hjólafærni og einkaleiðsögn án endurgjalds. Hjólafærni er tækni sem notuð er til að hjóla í sátt við aðra umferð á götum, og sérstaklega á frekar rólegum götum.
Hlemmur er aðal almennningsamgöngumiðstöð Íslendinga og verða haldnir tónleikar þar, skiptimarkaður (þú getur skipt gömlu dóti út fyrir nýtt), gefins “Slow food” – hollur matur og kynningar á þeim lausnum sem eru til staðar sem lausnir varðandi loftslagsbreytingar.
Að lokum verður buxnalaus gangur niður Laugaveg kl. 19 (hjólreiðafólk er líka hvatt til að hjóla í för með ber læri og leggi) – til að vekja athygli á grænum samgöngum!
Dagskrá:
14:00 Fjölda hjólreiðatúr @ Austurvöllur
15:00-19:00 Viðburðir @ Hlemmur
15:00 – Playground Birds
16:00 – Bróðir Svartúlfs
17:00 – Árstíðir
Þess má geta að einnig verður svipuð dagsskrá á Ísafirði og í Sólheimum í Grímsnesi á sama tíma.
Facebooksíða viðburðarins : http://www.facebook.com/event.php?eid=147669981938445&ref=ts
http://www.youtube.com/watch?v=s5kg1oOq9tY&feature=player_embedded
Textinn fyrir ofan er sóttur af www.loftslag.is.
Hér má sjá aðra viðburði þennan sama dag ( fleiri en 6000 í 188 löndum ) 350.org/map
Hér er frétt Strætó af þessum degi : www.straeto.is/um-fyrirtaekid/frettir/nr/961