Hjólreiðastígur frá Hrafnagili að Akureyri

Í frétt á vef Eyjafjarðarsveitar kemur fram að Eyjafjarðarsveit hyggst leggja 7.200 metra langan hjólreiða- og göngustíg á milli Akureyrar og Hrafnagils sem hluta af verkefninu hjólreiða- og göngustígur í Eyjafjarðarsveit.

Verklok eru áætluð 1. desember 2017. Tilkynningin hljóðar svo:


 
Eyjafjarðarsveit óskar eftir tilboðum í verkið Hjólreiða- og göngustígur í Eyjafjarðarsveit.  Verkið felur í sér lagningu 7.200 metra hjólreiða- og göngustíg,  frá bæjarmörkum Akureyrar að Hrafnagili,  ásamt lengingu stálröraræsa, endurnýjun og gerð nýrra ræsa undir stíg og lagfæringar á girðingum.  
 
Nokkrar magntölur:
- Gröftur:               7.000 m³
- Efra burðarlag:    10.700 m³
- Neðra burðarlag: 12.700 m³
- Girðingar:              1.700 m
 
Verklok eru 1. desember 2017.
 
Útboðsgögn verða afhent með rafrænum hætti.  Þeir sem óska eftir útboðsgögnum sendi beiðni á tölvupóstfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. ásamt nafni, heimilisfangi og síma.
 
Kynningarfundur fyrir verktaka verður á skrifstofu Eyjafjarðarsveitar mánudaginn 17. júlí 2017,  kl. 11:00
 
Tilboðum skal skila á Skrifstofu Eyjafjarðarsveitar, Skólatröð 9, 601 Akureyri fyrir kl.11:00,  31. Júlí  2017, en þá verða þau opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum, sem þess óska.
 

Nýtt frá LHM

Skoðið þetta

Allir hagnast á samgögnusamningum. Bætt heilsa, færri veikindadagar, skattfrjáls peningur og það bara fyrir að hvíla bílinn?
Samantekt Landssamtaka hjólreiðamanna um gerð samgöngusamninga.
LHM hefur útbúið leiðbeiningar fyrir umferð hjólandi á stígum og gangstéttum og götum. Markmiðið með úgáfu leiðbeininganna er að auka öryggi hjólandi í umferðinni og draga úr núningi milli hjólandi og annara vegfaranda hvort heldur er á stígum eða götum.
Leiðbeiningar LHM um umferð hjólandi á stígum og götum
Sáttmálinn innheldur góð ráð bæði til hjólreiðafólks og atvinnubílstjóra. Hann var gerður í samvinnu Samgöngustofu, Hjólafærni, Vegagerðarinnar, Eflu verkfræðistofu, Hjólaþjálfun (María Ögn), Landsamtaka hjólreiðamanna, Strætó, Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og Reykjavíkurborgar Sáttmáli atvinnubílstjóra og hjólandi vegfarenda
Nú geta einstaklingar gerst aðilar að LHM með einföldum hætti. Nánar hér.