10. stjórnarfundur LHM 9. feb. 2016
Mættir: Morten, Árni, Páll, Ásbjörn. Aðrir komust ekki
PG tók að sér fundargerð
Mál á dagskrá:
Rætt um hugsanlegar ástæður orsakir aðstæður og viðbrögð. Taka fram í fundargerð síðasta fundar að pg hafi ályktað að maðurinn hafi verið fórnarlamb aðstæðna og sinnuleysis stjórnvalda sem bera ábyrgð á þeim.
Sessý og Morten sendu ECF skýrslu um framvindu Leadership program.
Það er búið að funda með Umhverfisráðherra og Embætti landlæknis. Þau óskaði eftir ábendingum um heilsubætandi samfélög. Þau hittu Gígju Gunnarsdóttir, verkefnastjóra hreyfingar hjá embætti Landlæknis og Héðinn og Ingibjörgu og ræddu hvernig mögulegt samstarf.
Rætt um að nota Hjólað óháð aldri sem tæki til að virkja nýtt fólk bæði á höfuðborgarsvæðinu og úti á landi, t.d. Akureyri.
Sessý sendi tillögur uppstillinganefndar.
Enginn fyrirlestur fyrir aðalfund. Aðalfundur byrjar kl. 20.
Ferðamálastofa hefur ekki sinnt verkefninu sem skyldi og líkur eru á að verkefnið tefjist um þrjú ár þar sem ekki var ákveðnum áfanga sem EuroVelo gerir kröfur um í tíma.
Undirbúningsnefnd hefur hist tvisvar. Leitað er að áhugaverðum erindum þar sem hjólreiðar og náttúra tvinnast saman í tilefni af því að ráðstefnan verður haldin á Degi náttúrunnar 16. september m.a. í samvinnu við Landvernd.
(See attached file: FF - Hjólreiðastígaáætlun_umsókn 2016.docx)
(See attached file: 160128_Reidhjolaleidir_Rang_verkaaetlun.pdf)
Við fyrstu yfirferð lítur þetta vel út. Þetta er í raun styrkumsókn um fé til að útbúa hjólreiðastigaáætlun. Árni og Ásbjörn taka saman svar.
Grænir vegvísar. Gulir, rauðir, grænir og bláir reitir til að marka leiðir.
Umræður. Það eru til góð samþykkt skilti sem mætti nota og kannski óþarfi að finna þetta upp aftur. Sjást litir í myrkri.
Fundur á morgun hjá SSH um þessar merkingar. LHM er ekki í vinnuhópnum sem vinnur að þessum málum þó Ásbjörn sitji þar á vegum Vegagerðarinnar.
Umsögn LHM um breytingar á Grensásvegi suður. Hún var send óformlega í tölvupósti. Árni er búinn að taka saman umsögnina til birtingar á lhm.is. Má skreyta betur með skýringamyndum.
Kaffi og kökur