Heimsendi

skemmtilegar hjólaleiðirSprengisandur, upp Elliðaárdal og undir Höfðabakka við stíflu, yfir Vatnsveitubrú, fram hjá Fáki, yfir Dimmu (hjól borin), um Vatnsenda, meðfram Elliðavatni um Þingmannaleið og á Heimsenda.

Þá Elliðavatnsvegur, sunnan Rjúpnahæðar, norðan Vífilsstaðavatns, um Vífilsstaði og yfir Reykjanesbraut á ljósum.

Um Flatir með Hraunholtslæk, á hjólabrú yfir Hafnarfjarðarveg og yfir Hraunsholt.

Þá er hjólað norður eftir stíg 4 og austur eftir stíg 2 til Sprengisands.

Áætluð lengd um 25 km.

Nýtt frá LHM

Skoðið þetta

Allir hagnast á samgögnusamningum. Bætt heilsa, færri veikindadagar, skattfrjáls peningur og það bara fyrir að hvíla bílinn?
Samantekt Landssamtaka hjólreiðamanna um gerð samgöngusamninga.
LHM hefur útbúið leiðbeiningar fyrir umferð hjólandi á stígum og gangstéttum og götum. Markmiðið með úgáfu leiðbeininganna er að auka öryggi hjólandi í umferðinni og draga úr núningi milli hjólandi og annara vegfaranda hvort heldur er á stígum eða götum.
Leiðbeiningar LHM um umferð hjólandi á stígum og götum
Sáttmálinn innheldur góð ráð bæði til hjólreiðafólks og atvinnubílstjóra. Hann var gerður í samvinnu Samgöngustofu, Hjólafærni, Vegagerðarinnar, Eflu verkfræðistofu, Hjólaþjálfun (María Ögn), Landsamtaka hjólreiðamanna, Strætó, Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og Reykjavíkurborgar Sáttmáli atvinnubílstjóra og hjólandi vegfarenda
Nú geta einstaklingar gerst aðilar að LHM með einföldum hætti. Nánar hér.