Dagskrá laugardagsferða haustið 2019

Hjólaferðir LHM frá Hlemmi verða farnar á laugardagsmorgnum í vetur nú sem endranær. Að þeim standa Landssamtök hjólreiðamanna og aðildarfélag þess, Hjólafærni. Fyrir-hjólari flesta laugardaga verður Árni Davíðsson hjólafærnikennari og formaður Landssamtaka hjólreiðamanna.Farið er annan hvern laugardag. 

Fyrsta ferðin verður laugardaginn 5. október. Síðan verður farið annan hvern laugardag fram til 1. desember. Engar ferðir verða í desember en fyrsta ferð eftir áramót verður í byrjun janúar 2020. Mæting er milli 10:00 og 10:15 og er hjólað af stað kl. 10:15. Sem fyrr segir verður lagt af stað frá Hlemmi en upplýsingar birtast á Facebook síðu LHM: Landssamtök hjólreiðamanna (https://www.facebook.com/LandssamtokHjolreidamanna/).
Plakat til að hengja upp og auglýsa ferðirnar kemur hér: 
 
Dagskrá ferðanna:
  • 5. október - Reykjavík í rigningu og roki
     Í „Reykjavík í rigningu og roki“ hjólum við um veðursæl svæði borgarinnar þegar spáin er vond. Við hjólum um falda göngustíga, þröngar götur, undirgöng og bakgarða. Þetta er auðveld ferð og tilvalin til að sjá borgina á annan hátt og kynnast því að hjóla í góðum hóp.
  • 19. október - Litaðar lykilleiðir
    Í ferðinni ætlum við að hjóla eina af lituðu lykilleiðum höfuðborgarsvæðisins, Rauðu leiðina til Hafnarfjarðar og tilbaka þá fjólubláu.
  • 2. nóvember - Litaðar lykilleiðir
    Í ferðinni ætlum við að hjóla eina af lituðu lykilleiðum höfuðborgarsvæðisins, Gulu leiðina til Mosfellsbæjar og tilbaka þá bláu meðfram ströndinni.
  • 16. nóvember - Litaðar lykilleiðir
    Í ferðinni ætlum við að hjóla grænu lykilleiðina frá Lækjartorgi, um Fossvogsdal og Elliðaárdal og síðan heim um Breiðholtið.
  • 30. nóvember - Litaðar lykilleiðir
    Í ferðinni ætlum við að hjóla litaða lykilleið um höfuðborgarsvæðið. Þetta er síðasta ferðin fyrir jólafrí og í þetta sinn verður farinn bláa leiðin meðfram ströndinni enda erum við búin með rauðu, fjólubláu, gulu og grænu leiðina.
Hjólaðar eru mismunandi leiðir um borg og bý eftir rólegum götum og stígum í 1-2 tíma. Markmiðið er að hittast og sjá og læra af öðrum hjólreiðamönnum hversu auðvelt er að hjóla í bænum. Mikið lagt upp úr spjalli og rólegri ferð.
 
Ferðirnar eru ókeypis og allir velkomnir. Allir sem kunna að hjóla eiga að geta tekið þátt. Meðalhraði fer eftir hægasta manni en ætti oftast að vera á bilinu 10-20 km/klst. Þegar vetrar og dimmir þarf að gera ráð fyrir hlýjum og skjólgóðum fatnaði og að hafa ljós að framan og aftan. Í hálku er öryggi í nagladekkjum á hjólinu. Auðvelt er að taka strætó á Hlemm og aðra upphafsstaði með hjólið á laugardögum, áætlun strætó er á www.straeto.is.
 
Fyrirvari er um að menn hjóla á eigin ábyrgð að öllu leyti.
 
Ef menn vilja bæta öryggi sitt á hjólinu og fá kennslu í samgönguhjólreiðum er hægt að óska eftir kennslu á öðrum tímum. Hjólaafærni veitir margháttaða þjónustu sem hægt er að kynna sér á vefnum www.hjolafaerni.is eða með því að hringja.
 
Frekari upplýsingar má fá í síma eða í tölvupósti og sömuleiðis má láta vita af þátttöku í laugardagsferð.
 
Árni Davíðsson
s. 862 9247
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
 
Sesselja Traustadóttir
s: 864 2776
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Kort af lituðu lykileiðunum.