Ef þið viljið stíga græna skrefið alla leið er hér frumleg hugmynd að grasagarði á hjólið. Loksins eru líka not fyrir gömlu hálfónýtu sokkana sem stundum safnast upp hjá fólki.
Lesið bloggfærslur hennar Meghan þar sem hún fer yfir reynslu sína: 2010 bloggaði hún um grænu hjólabyltinguna og 2011 um hjóla-sokkagarðinn. Kannski hentar tempraða veðrið á Íslandi vel til að rækta sinn garð á hjólinu.



Útbúnaður
Hollendingar eru duglegir að nýta reiðhjól til að komast á milli staða en stundum þarf að fara með heilan hóp af krökkum milli skóla og frístundaheimilis og hvað er þá til ráða. Í Hollandi eru nú 25 skólahjólarútur notaðar í einmitt þessum tilgangi. Átta krakkar á aldrinum 4-12 ára drífa farartækið áfram ásamt fullorðnum rútustjóra og pláss er fyrir þrjá farþega til viðbótar.
Hér er stutt skemmtilegt myndband af ferðalagi Luke litla úr leikskólanum sínum í Belgíu og heim. Það sést vel hversu vel hann skemmtir sér á leiðinni.
Bike Fixtation framleiða þessa hjóla-viðgerða-sjálfsala. Sjálfsalinn geymir algenga varahluti, hjólinu er komið fyrir í standinum sem inniheldur helstu verkfæri og svo er auðvelt að stilla þýstinginn í dekkjunum með rafmagnspumpunni.
Hér sjást fimm hnakkar sem hjálpa karlmönnum að viðhalda karlmennskunni. Vert er að minnast á að þessi meinti vandi er stórlega ýktur, nema e.t.v. meðal keppnismanna sem sitja á reiðhjólinu framlútir klukkustundum saman dag eftir dag og ansa ekki skilaboðum frá likamanum. Þetta kemur líka fram í skilaboðunum fyrir neðan greininni. Hjá flerstum auka hjólreiðar blóðflæðið og efla frekar en minnka kyngetuna.
Blikksmiðja Gylfa Formvélar ehf. býður upp á hjólavagna og því þarf ekki lengur að nota bílinn til að skutlast með börnin.
“Rugged cycle” er ný tegund hjóla sem eru hönnuð fyrir jarðolíuiðnaðinn og er hugmynd Vince nokkurs Denais fyrrum svæðisstjóra í Texas. Verksmiðjustarfsmenn notuðu hjól til ferðast hratt á milli en oft var sprungið á dekkjum og hjólin ryðguð. Þau voru gagnslaus eða óörugg að hans mati. Hann í samstarfi við NASA verkfræðinginn föður sinn og bróður sinn með þekkingu á málmvinnslu hönnuðu hjólið og hófst framleiðsla árið 2007 og er það framleitt í tólf manna fjölskyldufyrirtæki í Corpus Christi.
Frá Árhúsum í Danmörk berast fréttir af því að nú eigi að setja leiðarljós á enn einn hjólastíginn enda hafi þetta reynst vel. Danska fyrirtækið Geveko ITS framleiðir ljósin sem eru örþunn en sterkbyggð enda eiga þau að þola umferð snjóplóga á veturna. Þau hlaða sig í sólarljósi og lýsa í myrkri. Það veitti ekki af því að hafa svona leiðarlýsingu á nokkrum illa lýstum stígum á Íslandi.
Vinsældir rafmagnsreiðhjóla fer sívaxandi og mörg slik eru komin á götur og stíga á Íslandi.