„Þetta er vilji borgarinnar að þarna sé sett einstefna og lögreglustjórinn þarf svo að samþykkja það,“ segir Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Fyrir nokkrum mánuðum setti Reykjavíkurborg upp einstefnumerki á Suðurgötu við gamla kirkjugarðinn í Reykjavík. Geir Jón segir borgina hafa farið út í þá aðgerð án þess að fyrir lægi samþykki lögreglustjóra.
„Reiðhjól eru öruggasta faratæki sem völ er á í borgarumferð á Íslandi,“ segir Páll Guðjónsson sem situr í laganefnd Landsamtaka hjólreiðarmanna. „Hér á landi hefur hjólreiðarmaður ekki látist í umferðinni í tólf ár. Þrátt fyrir það er sífellt verið að senda þau skilaboð að hjólreiðar séu hættulegar,“ segir Páll.
Tveir lögreglumenn á reiðhjólum tóku ökumann vespu-bifhjóls úr umferð á Akureyri í nótt þar sem hann reyndist undir áhrifum áfengis. Þetta gerðist á Mýrarvegi við Kaupvang og var Vespumaðurinn sviftur ökuréttindum til bráðabirgða.
Lögreglumenn á Akureyri eru farnir að nota reiðhjól til eftirlits að næturlagi, enda heyra lögreglumenn þá betur til innbrotsþjófa, og þjófarnir heyra ekki lögregluna nálgast.
Skálafell Bike Park opnaði formlega um síðustu helgi. Þar er að finna tvær hjólreiðabrautir í 220 metra fallhæð. Þangað er farið með stólalyftu en markmiðið er að nýta betur þjónustu skíðasvæðisins yfir sumartímann. Opið er frá 12 til 16 allar helgar.
Búið er að leggja tvær hjólabrautir í Skálafelli og laga stólalyftuna þannig að ekkert mál er að koma með hjól, fara upp með stólalyftunni og hjóla síðan niður af fjallinu.
Lögreglan nýtir reiðhjól við eftirlitsstörf í sumar og ræddu þær Hulda Guðmundsdóttir og Svava Snæberg Hrafnkelsdóttir, hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, við krakka í sumarskóla Hjallstefnunnar á Austurvelli í dag.
Þórir Kr. Þórisson, fyrrverandi bæjarstjóri í Fjallabyggð, ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur, en hann mun hjóla frá Seltjarnarnesi til Siglufjarðar nk. þriðjudag til styrktar Iðju/dagvistun fyrir fatlaða á Siglufi
Hávarður Tryggvason „Ísfirðingur“ leggur af stað þann 22. júní upp í hjólreiðaferð um Vestfirði til styrktar Grensásdeild. Farinn verður rangsælis hringur um þjóðvegi „neðri kjálka“ Vestfjarða , alls tæplega 700 km vegalengd og um 5000 metrar í hækkanir.
Page 5 of 15