Borgarlína vinnslutillaga vegna breytinga á svæðisskipulagi og aðalskipulagi

Umsagnarnefnd Landssamtaka hjólreiðamanna (LHM) hefur skoðað forkynningu vinnslutillaga vegna breytinga á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins 2040. Vinnslutillagan felst í að festa legu samgönguása fyrir Borgarlínu og að skilgreina viðmið um uppbyggingu á áhrifasvæðum.

Ennfremur hefur umsagnarnefndin skoðað vinnslutillögur vegna breytingar á aðalskipulagi sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu vegna afmörkunar samgöngu- og þróunaráss höfuðborgarsvæðisins. Vinnslutillögurnar felast í að staðsetja legu Borgarlínu, helstu stöðva og skilgreina heimildir til uppbygginga á áhrifasvæðum. Það er : Aðalskipulags Reykjavíkur 2010-2030, Aðalskipulags Seltjarnarnesbæjar 2015-2033, Aðalskipulags Mosfellsbæjar 2011-2030, Aðalskipulags Kópavogs 2012-2024, Aðalskipulags Hafnarfjarðar 2013-2025 og Aðalskipulags Garðabæjar 2004-2016.

Gögn:

Vinnslutillögur voru aðgengilegar á eftirfarandi stöðum:

• Skrifstofu SSH, Hamraborg 9, 200 Kópavogi og á heimasíðunni Greinagerðar vinnslutillögu á svæðisskipulagssíðu SSH

• Bæjarskrifstofu Garðabæjar, Garðatorgi 7, 210 Garðabæ og á heimasíðunni www.gardabaer.is

• Ráðhúsi Hafnarfjarðar, Strandgöta 6, 220 Hafnarfjörður, og á heimasíðunni www.hafnarfjordur.is

• Skrifstofu Kópavogsbæjar, Fannborg 2, 200 Kópavogur, og á heimasíðunni www.kopavogur.is

• Bæjarskrifstofu Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ og á heimasíðunni www.mosfellsbaer.is

• Þjónustuveri Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík og á heimasíðunni www.reykjavik.is

• Bæjarskrifstofu Seltjarnarness, Austurströnd 2, 170 Seltjarnarnes og á heimasíðunni www.seltjarnarnes.is

• Skrifstofu Kjósarhrepps, Ásgarði Kjós, 276 Mosfellsbæ og á heimasíðunni www.kjos.is

Umsögn LHM

Umsögn LHM um vinnslutillöguna er hér: Umsögn um vinnslutillögu.