Nagladekk eru þörf í Reykjavík

rvk-nagladekkReykjavíkurborg er nú með átak gegn notkun nagladekkja undir bifreiðar sem er gott og vonandi fær hjólreiðafólk að njóta betri loftgæða fyrir vikið. Það á hinsvegar allt annað við um nagladekk undir reiðhjól heldur en bifreiðar. Við mælum eindregið með að allir noti nagladekk undir hjólin sín á veturna. Þau gefa frábært grip í þeirri hálku sem oft er á stígum og víðar því þar er minni umferð en á akbrautunum og leiðir hlykkjóttari og mikilvægt að hafa gott grip.

Sjá nánar fréttatilkynningu Reykjavíkurborgar hér og ýmis ráð um vetrarhjólreiðar á vef Fjallahjólaklúbbsins.