Dagskrá laugardagsferða vorið 2021

 

Hjólaferðir LHM hafa legið niðri á haustmánuðum 2020 vegna takmarkana á félagsstarfi vegna Covid. Nú leyfa takmarkanir aftur hjólaferðir og því gerum við ráð fyrir að ferðir LHM frá Hlemmi á laugardagsmorgnum hefjist aftur núna í janúar og standi til loka apríl. Að þeim standa Landssamtök hjólreiðamanna og aðildarfélag þess, Hjólafærni. Fyrir-hjólari flesta laugardaga verður Árni Davíðsson hjólafærnikennari og formaður Landssamtaka hjólreiðamanna. Farið er annan hvern laugardag. 

Fyrsta ferðin eftir áramót verður farinn laugardaginn 9. janúar. Síðan verður farið annan hvern laugardag fram til 17. apríl, sem er síðasta ferð vetrarins. Mæting er milli 10:00 og 10:15 og er hjólað af stað kl. 10:15. Sem fyrr segir verður lagt af stað frá Hlemmi en upplýsingar birtast á Facebook síðu LHM: Landssamtök hjólreiðamanna (https://www.facebook.com/LandssamtokHjolreidamanna/). Vegna Covid gilda venjulegar sóttvarnarráðstafanir, 2m fjarlægð í ferðum og notkun andlitsgríma ef farið er inn eða í kaffi.
 
Dagskrá ferðanna:
  • 9. janúar - Hjólað um miðborgina
     Í fyrstu ferðinni eftir áramót ætlum við að hjóla um miðborgina og sjá hvernig hún er að þróast fyrir þá sem hjóla. Hjólað verður í um einn og hálfan tíma og stoppað nokkuð víða.
  • 23. janúar - Hjólað í Smáralind
    Það er hægt að hjóla í Smáralind og meira að segja er nú komin fín innanhús aðstaða fyrir hjólandi í Smáralindinni og við ætlum að kíkja á hana.
  • 6. febrúar - Borgarlínan
    Frumdrög að fyrstu áfanga Borgarlínu voru kynnt 5. febrúar. Í ferðinni ætlum við að hjóla og skoða þennan fyrsta áfanga. Hlemmur - Hamraborg.
  • 20. febrúar - Borgarlína
    Frumdrög að fyrstu áfanga Borgarlínu voru kynnt 5. febrúar. Í ferðinni ætlum við að hjóla og skoða þennan fyrsta áfanga. Hlemmur - Ártúnshöfði.
  • 6. mars - Kirkjugarðar
    Við hjólum um nokkra kirkjugarða borgarinnar og greftrunarstaði afbrotamanna.
  • 20. mars - Þingholtin, hæðir og lægðir.
    Við munum halda okkur vestan við Hlemm í ferð dagsins.  Þingholtið verður skoðað ofan í kjöl og við endum í léttum hádegisverði einhvers staðar á svæðinu.
  • 3. apríl - Dysjar og kirkjugarður
    Við hjólum í Kópavog og lítum á kirkjugarðinn og dysjar afbrotamanna.
  • 17. apríl - Óvissuferð
    Við látum veðrið ráð för.

Hjólaðar eru mismunandi leiðir um borg og bý eftir rólegum götum og stígum í 1-2 tíma. Markmiðið er að hittast og sjá og læra af öðrum hjólreiðamönnum hversu auðvelt er að hjóla í bænum. Mikið lagt upp úr spjalli og rólegri ferð.

Ferðirnar eru ókeypis og allir velkomnir. Allir sem kunna að hjóla eiga að geta tekið þátt. Meðalhraði fer eftir hægasta manni en ætti oftast að vera á bilinu 10-20 km/klst. Þegar vetrar og dimmir þarf að gera ráð fyrir hlýjum og skjólgóðum fatnaði og að hafa ljós að framan og aftan. Í hálku er öryggi í nagladekkjum á hjólinu. Auðvelt er að taka strætó á Hlemm og aðra upphafsstaði með hjólið á laugardögum, áætlun strætó er á www.straeto.is.
Fyrirvari er um að menn hjóla á eigin ábyrgð að öllu leyti.
 
Ef menn vilja bæta öryggi sitt á hjólinu og fá kennslu í samgönguhjólreiðum er hægt að óska eftir kennslu á öðrum tímum. Hjólaafærni veitir margháttaða þjónustu sem hægt er að kynna sér á vefnum www.hjolafaerni.is eða með því að hringja.
 
Frekari upplýsingar má fá í síma eða í tölvupósti og sömuleiðis má láta vita af þátttöku í laugardagsferð.
 
Árni Davíðsson
s. 862 9247
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
 
Sesselja Traustadóttir
s: 864 2776
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Kort af lituðum lykileiðum.