Betra að hjóla á háum hælum

  • dv-2012_3_12Oddný Sturludóttir hefur aldrei átt bíl
  • Konur hjóla minna en karlar í Reykjavík

Ég hef aldrei átt bíl og reyni að ferðast alltaf um á hjóli, það getur verið snúið en ég reyni að skipuleggja mig til hins ýtrasta,“ segir Oddný Sturludóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, sem stendur að því verkefni borgarinnar að grípa til aðgerða til að fá fleiri konur til að hjóla í Reykjavík. Verkefnið ber yfirskriftina; Fröken Reykjavík á hjóli.

Oddný segir verkefnið vera lið í því að auka val borgarbúa um vistvæna samgöngukosti og segir frá því að í nýrri ferðavenjukönnun hafi vakið sérstaka athygli hennar að konur virðast mun síður en karlar nýta sér hjólreiðar. „Það er mikill munur eftir kynjum því 8% kvenna hjóla allt árið en 17% karla. Nú ætlum við að greina ástæður þessa munar og gera eitthvað í því. Við þurfum að kortleggja hjólaleiðir til og frá vinnustöðum, huga að betra öryggi og efla fræðslu.“

 

Konur hafa ekki tíma til að hjóla

Oddný segist nú þegar hafa fengið mikil viðbrögð við verkefninu. „Ég hef fengið mikið af tölvupóstum og skilaboðum um ástæður þess að konur nota síður hjól en karlar. Margar konur segja sömu söguna, þær segjast sækja börn í leikskóla og skóla fremur en makinn og þá standa þær í skutli í tómstundir.

Það þarf að skoða hvers vegna konur standa frekar í þessu en karlmenn og hvetja til jafnræðis. Það verður ekki hlaupið að því að gera alla þessa hluti á hjóli.“ Það hefur Oddný hins vegar gert í fjölda ára. „Ég fer sjaldan í búð að kaupa mikið magn inn í einu. Ég kaupi mikið inn í einu til heimilisins. Ég bý og starfa stutt frá skóla barna minna og ég nýt góðs af því. Auðvitað eru ekki allir jafn heppnir.“

 

Spandexið fælir frá

Oddný segir að ef við viljum sjá árangur í bættum samgönguvenjum og betri og umhverfisvænni borg þá þurfi konur sér í lagi að nota aðra samgöngumáta en bílinn.

„Ég mæli með síðunni girlbike. love.com, á henni kemur til dæmis fram það sem hefur verið rannsakað – að konur stýra neyslu heimilisins. Þær eru mikið breytingarafl og ef konur eru þess ekki fullvissar að það sé öruggt og gott að hjóla, þá gerist ekkert. Ef við byrjum ekki á þeim og tryggjum örugga, mannvæna og kvenvæna borg, þá náum við engum árangri.“

„Síðan er önnur pæling í þessu samhengi en hún snýr að því hvernig við höfum hugað að hjólaleiðum. Við höfum tekið mörg góð skref hvað það varðar í borginni. Þú átt að geta þrætt þig í gegnum borgina, hjól er samgöngutæki en ekki aðeins sporttæki. Ég á ekki að þurfa að hjóla eftir strandlínunni, eða sérmerktum hjólastígum til að komast leiðar minnar.

Svo höfðar mun minna til kvenna en karla þessi græjubisness sem virðist fylgja hjólreiðum karla. Alls kyns mælar og útbúnaður, appelsínugul föt og spandex. Ein þeirra kvenna sem skrifaði mér bréf sagði græjubisnessinn hafa fælandi áhrif.“´

Sjálf er Oddný alltaf í háum hælum á hjólinu. „Ég er oft spurð hvernig ég geti hjólað á svona háum hælum. Þá svara ég að það sé miklu auðveldara að hjóla í þeim en ganga á þeim,“ segir hún og hlær. „Þetta er satt!“ bætir hún við. „Það er miklu auðveldara að hjóla í hælum en að ganga í þeim langar vegalengdir, svo er hællinn hagnýtur líka. Skorðar pedalann af og svona.“

 

Kostir hjólreiða

Þú sparar pening

Hjólreiðar eru mun ódýrari en akstur. Það er hægt að hjóla meirihlutann af árinu á Íslandi en þegar það er ekki hægt má notast við almenningssamgöngur og/eða leigubíla.
Þú lifir lengur Í hvert skipti sem þú reynir á þig styrkir þú ónæmiskerfið sem ver þig fyrir lífsstílstengdum sjúkdómum svo sem offitu, krabbameini og hjartasjúkdómum.

Þú ert grennri og stæltari

Hjólreiðar eru auðveld hreyfing þar sem þú stýrir álaginu. Það er auðvelt að brenna fitu með því að hjóla án þess að fara í megrun.

Þú ert greindari

Í rannsókn frá Spanish National Research kom fram að stúlkur sem hjóla eða ganga til skóla fá hærra skor í greindarmælingum en aðrar. Enginn sjáanlegur munur var á greind drengja eftir því hvort þeir kusu að hreyfa sig eður ei. Það er hins vegar staðreynd að fólk sem byrjar daginn á því að hreyfa sig er meira vakandi og á auðveldara með að leysa verkefni.

Þú ert hamingjusamari

Hreyfing, sérstaklega utandyra, vinnur á streitu og eykur vellíðan. Framleiðsla á hamingjuhormónum og minni streita leiðir til mun meiri lífsgleði.

Hjólað með stæl

Fjölbreytt úrval hjólafatnaðar sem höfðar til kvenna. Úrval útbúnaðar sem ætlað er til hjólreiða hefur aukist mjög síðustu ár og það færist í aukana að hann sé þróaður fyrir konur.

1 Hjálmar eins og hattar

Yakkay framleiðir hjálma sem líta út eins og hattar og henta vel þegar svalt er í veðri. Loðhattar fyrir veturinn og svartur gervileðurhjálmur með krókódílsprenti. Hjálmarnir hafa verið til sölu í GÁP og víðar á Íslandi en má líka kaupa af vefsíðunni yakkay.com.

2 Körfur eða töskur

Þægilegt er að hafa körfur á hjólinu. Margir kjósa að vera með körfu í stað geymslupláss á bögglabera.

3 Fallegar og vel hannaðar töskur

Po Campo-töskurnar eru framleiddar í Chicago. Þessi festist ofan á bögglaberann. Þá má líka fá töskur sem eru festar á stýrið. Kíkið á úrvalið hjá PoCampo: pocampo.com

4 Hátíska á hjóli

Rilfa-tískulínan frá Kathleen Scully er bæði hönnuð með öryggi og útlit að leiðarljósi. Henni gramdist að sjá konur hjóla án öryggisbúnaðar og hannar nú hjólavænan tískufatnað.


Uppruni: DV 12. mars 2012 Kristjana