Hjólað í Fossvogsdal

hjolFV_midÞessa dagana er hólað á hverjum degi í frímínútum í Fossvogsskóla, en þar stendur yfir hjólavika. Nær allir nemendur og starfsmenn koma á reiðhjólum í skólann, og ef ekki - þá gangandi. Að tveimur vikum liðnum verður aftur hjólavika í skólanum.

Nemendur  í Fossvogsskóla hafa löngum verið hvattir til að koma gangandi eða hjólandi í skólann. Síðustu ár hefur verið lögð meiri og meiri áhersla á hjólreiðar og er hlaupahjólið ekki undanskilið. Hjólavikur eru því haldnar hvert haust og á hverju vori.

Á miðvikudögum verður í haust svokallað hjólerí, en þá kennir Sesselja Traustadóttir hjólagúrú nemendum í 6. og 7. bekk hvernig á að laga hjól, s.s. smyrja, gera við sprungin dekk, bilaða gíra og lausar keðjur. Í útikennslu fara nemendur einnig með kennurum gangandi eða hjólandi um Fossvogsdalinn eða jafnvel í lengri ferðir. Áhersla er lögð á að nemendur noti hjálma og gæti fyllstu varúðar í umferðinni.

Hjólerí í Fossvogsskóla fellur að þessu sinni saman við samgönguviku, sem einmitt gengur út á að hvetja fólk til að nýta sér vistvænan ferðamáta. Því má fullyrða að nemendur í Fossvogsskóla séu samborgurum sínum sönn fyrirmynd.

Uppruni: http://www.reykjavik.is/desktopdefault.aspx/tabid-757/521_read-28153/

Hjoleri_mid