Nýr stígur tengir Mosfellsbæ og Reykjavík

Hjólasveinar og meyjar glöddust innilega í dag er nýr hjóla- og göngustígur milli Mosfellsbæjar og  Reykjavíkur var formlega tekinn í notkun af borgarstjóra, bæjarstjóra Mosfellsbæjar og vegamálastjóra. Eftir að klippt hafði verið á borða stigu hjólasveinar og meyjar á reiðhjól sín og héldu með klingjandi bjölluhljóm eftir stígnum.

Nýi stígurinn er góð samgöngubót og er hann hluti af stofnstígakerfi höfuðborgarsvæðisins en í sumar gengu Vegagerðin og Reykjavíkurborg frá tímamótasamningi um uppbyggingu þess.

Göngu- og hjólastígurinn er tilvalinn til útivistar ekki síst í vetur en í  hópi hjólasveinanna voru margir sem stunda hjólreiðar allan ársins hring. Reykjavíkurborg sinnir vetrarþjónustu á nýja stígnum alla leið inn í byggð í Mosfellsbæ. Hjólreiðafólk er hvatt til að nota bjöllur sínar til að gera gangandi viðvart ekki síst nú í skammdeginu. Einnig er eftir að ganga frá hraðahindrun á aðkomuveg að Bauhaus til að tryggja enn frekar öryggi hjólafólks og gangandi vegfarenda.

Vegagerðin, Mosfellsbær og Reykjavíkurborg stóðu sameiginlega að framkvæmdum við stíginn sem fólust í tengingu stígakerfa sveitarfélaganna með lagningu stofnstígs frá athafnasvæði skógræktar Mosfellsbæjar við Hamrahlíð að gönguleið við akstursrampa að Bauhaus í Höllum. Verkið var boðið út í lok maí og var verktakafélagið Glaumur ehf. hlutskarpast.  Sett var upp göngubrú, jarðvegsskipti námu 4.500 rúmmetrum og malbikaðir voru um 5 þúsund fermetrar. Gengið var frá ræsum og 38 ljósstólpar settir upp.  Stígurinn var lagður i gegnum skógræktarsvæðið í sátt við Skógræktarfélagið og að þess beiðni voru tré sem felld voru skilin eftir til að brotna niður náttúrulega. Einnig tókst vel til með að færa gróðurþekju úr stígstæðinu og endurnýta á fláum við stíginn. Heildarkostnaður framkvæmda nam um 60 milljónum króna, sem deilist á verkkaupa.


Uppruni: www.reykjavik.is
ATH: LHM og ÍFHK hafa fengið það staðfest hjá tveim aðilum innan borgarinnar að ekki standi til að setja yfirborðsmerkingar til að aðskilja gangandi og hjólandi á stíginn enda leyfir breidd hans ekki slíka skiptingu. Texti um slíkt rataði fyrir mistök inn í upprunalegu fréttatilkynninguna.

Nýr stígur tengir Mosfellsbæ og Reykjavík

Fleiri myndir á vef Fjallahjólaklúbbsins: Nýr hjóla- og göngustígur milli Mosfellsbæjar og Reykjavíkur