Fjallahjólagarður í Þorlákshöfn

Búið er að opna fjallahjólagarð í Þorlákshöfn og var hann formlega tekin í notkun 17. júní s.l.
Hann er rekin af Félagi fjallahjólara í Ölfusi. 
Æfingabrautin hentar fjallahjólurum af öllum getustigum en öllum er bent á að nauðsynlegt er að nota viðeigandi hlífðarbúnað og kynna sér brautina vel áður en farið er af stað í brautina. 
 
Brautin er staðsett í gömlu gryfjunni við Nesbraut. Sjá nánar Google Maps eða á map.is.
 
Sagt er frá brautinnni í Sunnlenska.is og á Visir.is.
Myndir frá opnun eru á vefsíðu Ölfus.
 
(Myndir Ölfus)