Minnisblað LHM í starfshópi um áratug aðgerða

lhmmerkitext1Landssamtök hjólreiðamanna hafa tekið þátt í vinnu starfshóps um "Áratug aðgerða" (A decade of action) sem er starfandi á vegum Innanríkisráðuneytisins. Áður en vinnuhópurinn fór í sumarfrí lagði LHM fram minnisblað (pdf 100kb) til að koma að sjónarmiðum samtakanna varðandi aðgerðir sem eru ætlaðar til að bæta öryggi svo kallaðra "óvarinna vegfarenda" en það er safnheiti sem sumir vilja nota yfir gangandi og hjólandi vegfarendur og vélhjólamenn.

 

Heitið "óvarðir vegfarendur" er reyndar misvísandi því gangandi og hjólandi eru þeir vegfarendur sem skapa minnsta hættu fyrir aðra vegfarendur í umferðinni og væri eðlilegra að kalla þá með jákvæðu heiti eins og "góðir", "heilbrigðir" eða "hættulitlir" vegfarendur. Að ganga og hjóla hefur jú einnig heilsubætandi áhrif og hverfandi umhverfisáhrif hvort sem litið er á hlutina í hnattrænu samhengi eða í samhengi við nærumhverfi í borgum og bæjum.

 

Hættulegir vegfarendur eru þeir sem valda mestum skaða í umferðinni og hafa drepið og limlest flesta.