Flokkur: LHM
Flokkur: LHM

Lög LHM til 2016

1. grein - Nafn samtakanna

Samtökin heita LANDSSAMTÖK HJÓLREIÐAMANNA, skammstafað LHM, kennitala 640399-2289

2. grein -Félagsleg uppbygging

LHM eru regnhlífasamtök hjólreiðafélaga á Íslandi.

Haldnir eru fundir reglulega með formönnum aðildarfélaganna.

Aðilar að LHM eru félög, hópar eða einstaklingar sem aðalfundur LHM eða aukaaðalfundur hefur samþykkt með meirihluta atkvæða. Kjörgengi og atkvæðarétt hafa allir félagsmenn þeirra félaga sem aðild eiga að LHM. Aðildarfélög greiða 5% greiddra félagsgjalda til LHM.

Stjórn LHM er heimilt að semja um annað fyrirkomulag. Einstaklingar sem eiga aðild að LHM greiða árlegt félagsgjald sem ákveðið er á aðalfundi.

3. grein - Markmið félagsins og verkefni

Að efla hjólreiðar á Íslandi sem raunhæfan samgöngumáta og vera í forsvari hjólandi umferðar á Íslandi.

Samtökin skulu útbreiða og efla hjólreiðar sem keppnisíþrótt, fjölskylduvæna almenningsíþrótt og heilsusamlegan lífsmáta.

Samtökin beita sér fyrir hvers konar fræðslu- og kynningarstarfsemi í samstarfi við félög og áhugafólk á öllum aldri.

4. grein - Aðalfundur LHM

Boðun aðalfundar

Aðalfund LHM skal halda í febrúar ár hvert. Boðað skal til aðalfundarins með auglýsingu sem birtist með mánaðar fyrirvara.

Eigi síðar en 4 vikum fyrir aðalfund skal stjórnin skipa 3ja manna kjörnefnd sem gerir tillögu til aðalfundar um menn í stjórn, varastjórn og sem skoðunarmann reikninga. Kjörnefnd skilar stjórninni tillögum sínum eigi síðar en viku fyrir aðalfund.

Hver sá sem vill gera tillögu um menn til kjörs í stjórn, varastjórn eða sem skoðunarmann reikninga skal á sama hátt hafa skilað stjórn LHM tillögu þess efnis fyrir áðurgreindan tíma með fullgildu samþykki viðkomandi. Aðeins skal kosið um þá menn sem tillaga hefur verið gerð um til stjórnarinnar skv. því sem að ofan greinir.

Heimilt er að stinga upp á frambjóðendum á aðalfundi en þá þarf a.m.k. helmingur fundarmanna að samþykkja að frambjóðandi sé í kjöri.

Tillögur sem einstök félög/félagar hyggjast bera upp á aðalfundi sem og tillögur um lagabreytingar skulu hafa borist stjórn samtakanna eigi síðar en 2 vikum fyrir aðalfund.

Stjórnin sendir síðan aðildarfélögum LHM tillögurnar fyrir aðalfundinn.

Rétt til setu á aðalfundi hafa allir fullgildir félagar í aðildarfélögum LHM og almennir félagsmenn LHM.

Aðalfundur er löglegur án tillits til fjölda þeirra sem á hann mæta ef löglega er til hans boðað.

Enginn fundarmaður er með meira en 1 atkvæði á aðalfundi og ekki er heimilt að fara með umboð annars við atkvæðagreiðslu eða kosningar.

Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:

  • 1. Kjör fundarstjóra og fundarritara
  • 2. Ársskýrsla stjórnar
  • 3. Skýrslur nefnda
  • 4. Umræður um skýrslur
  • 5. Reikningar bornir upp
  • 6. Tillögur aðildarfélaga/ félagsmanna
  • 7. Umræður um tillögur aðildarfélaga/ félagsmanna
  • 8. Kynning frambjóðanda og fyrirspurnir til þeirra
  • 9. Kjör formanns
  • 10. Kjör meðstjórnanda, skoðunarmanns reikninga og nefnda
  • 11. Fjárhags- og framkvæmdaáætlun fyrir næsta ár lögð fram
  • 12. Önnur mál
  • 13. Fundargerð lesin og samþykkt

Um kosningar

Í öllum málefnum skal meirihluti atkvæða ráða nema hvað 2/3 hluta greiddra atkvæða þarf til að lagabreytingar nái fram að ganga.

Allar kosningar skulu fara fram með handauppréttingu nema óskað verði eftir skriflegum kosningum. Verði 2 jafnir ræður hlutkesti.

Kosnir stjórnarmenn sitji að jafnaði eigi lengur en 4 ár í embætti samfellt

Formaður er kosinn til eins árs í senn.

2-3 meðstjórnendur eru kosnir til 2ja ára þannig að stjórnina skipa 4-6 auk formanns. Stjórnin skiptir með sér verkum varaformanns, gjaldkera, ritara og meðstjórnanda. Kjósa skal 1-2 varastjórnarmenn til eins árs.

Kjósa skal einn skoðunarmann reikninga og einn til vara.

Kjósa skal starfsnefndir.

5. grein - Aukaaðalfundur

Stjórnin getur ákveðið að efna til aukaaðalfundar ef hún telur til þess ástæður. Þá skal henni skylt að boða til aukaaðalfundar sé sett fram um það skrifleg krafa 1/3 hluta félaga/
félagsmanna eða 20 félagsmanna.

Aukaaðalfundur skal auglýst á venjulegan hátt með 14 daga fyrirvara. Engar lagabreytingar er leyfilegt að gera á aukaaðalfundi og ekki að kjósa í stjórn nema bráðabirgðastjórn, ef meirihluti stjórnar hefur sagt af sér eða hætt störfum af öðrum ástæðum.

6. grein - Störf stjórnar

Stjórnin leiði störf félagsins.

Starfsnefndir sem aðalfundur kann að kjósa skulu lúta fyrirmælum stjórnar um vinnutilhögun nema aðalfundurinn hafi lagt fyrir annað.

Þessi lög voru samþykkt á aðalfundi LHM 2012.

Flokkur: LHM

Lög LHM til 2021

Að efla hjólreiðar á Íslandi sem raunhæfan, umhverfisvænan og heilsusamlegan samgöngumáta og vera í forsvari fyrir hjólandi umferð.

Samtökin skulu útbreiða og efla hjólreiðar sem fjölskylduvæna almenningsíþrótt, keppnisíþrótt og heilsusamlegan lífsmáta.

Samtökin beita sér fyrir hvers konar fræðslu- og kynningarstarfsemi í samstarfi við félög og áhugafólk á öllum aldri.

4. grein - Aðalfundur LHM

Boðun aðalfundar

Aðalfund LHM skal halda í febrúar ár hvert. Boðað skal til aðalfundarins með auglýsingu sem birtist með mánaðar fyrirvara.

Eigi síðar en 4 vikum fyrir aðalfund skal stjórnin skipa 3ja manna kjörnefnd sem gerir tillögu til aðalfundar um menn í stjórn, varastjórn og sem skoðunarmann reikninga. Kjörnefnd skilar stjórninni tillögum sínum eigi síðar en viku fyrir aðalfund.

Hver sá sem vill gera tillögu um menn til kjörs í stjórn, varastjórn eða sem skoðunarmann reikninga skal á sama hátt hafa skilað stjórn LHM tillögu þess efnis fyrir áðurgreindan tíma með fullgildu samþykki viðkomandi. Aðeins skal kosið um þá menn sem tillaga hefur verið gerð um til stjórnarinnar skv. því sem að ofan greinir.

Heimilt er að stinga upp á frambjóðendum á aðalfundi en þá þarf a.m.k. helmingur fundarmanna að samþykkja að frambjóðandi sé í kjöri.

Tillögur sem einstök félög/félagar hyggjast bera upp á aðalfundi sem og tillögur um lagabreytingar skulu hafa borist stjórn samtakanna eigi síðar en 2 vikum fyrir aðalfund.

Stjórnin sendir síðan aðildarfélögum LHM tillögurnar fyrir aðalfundinn.

Rétt til setu á aðalfundi hafa allir fullgildir félagar í aðildarfélögum LHM og almennir félagsmenn LHM.

Aðalfundur er löglegur án tillits til fjölda þeirra sem á hann mæta ef löglega er til hans boðað.

Enginn fundarmaður er með meira en 1 atkvæði á aðalfundi og ekki er heimilt að fara með umboð annars við atkvæðagreiðslu eða kosningar.

Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:

  • 1. Kjör fundarstjóra og fundarritara
  • 2. Ársskýrsla stjórnar
  • 3. Skýrslur nefnda
  • 4. Umræður um skýrslur
  • 5. Reikningar bornir upp
  • 6. Tillögur aðildarfélaga/ félagsmanna
  • 7. Umræður um tillögur aðildarfélaga/ félagsmanna
  • 8. Kynning frambjóðanda og fyrirspurnir til þeirra
  • 9. Kjör formanns
  • 10. Kjör meðstjórnanda, skoðunarmanns reikninga og nefnda
  • 11. Fjárhags- og framkvæmdaáætlun fyrir næsta ár lögð fram
  • 12. Önnur mál
  • 13. Fundargerð lesin og samþykkt

Um kosningar

Í öllum málefnum skal meirihluti atkvæða ráða nema hvað 2/3 hluta greiddra atkvæða þarf til að lagabreytingar nái fram að ganga.

Allar kosningar skulu fara fram með handauppréttingu nema óskað verði eftir skriflegum kosningum. Verði 2 jafnir ræður hlutkesti.

Kosnir stjórnarmenn sitji að jafnaði eigi lengur en 4 ár í embætti samfellt

Formaður er kosinn til eins árs í senn.

4-8 stjórnarmenn eru kosnir til 1 árs. Stjórnin skiptir með sér verkum varaformanns, gjaldkera, ritara og meðstjórnanda. Kjósa skal 1-2 varastjórnarmenn til eins árs.

Kjósa skal einn skoðunarmann reikninga og einn til vara.

Kjósa skal starfsnefndir.

5. grein - Aukaaðalfundur

Stjórnin getur ákveðið að efna til aukaaðalfundar ef hún telur til þess ástæður. Þá skal henni skylt að boða til aukaaðalfundar sé sett fram um það skrifleg krafa 1/3 hluta félaga/
félagsmanna eða 20 félagsmanna.

Aukaaðalfundur skal auglýst á venjulegan hátt með 14 daga fyrirvara. Engar lagabreytingar er leyfilegt að gera á aukaaðalfundi og ekki að kjósa í stjórn nema bráðabirgðastjórn, ef meirihluti stjórnar hefur sagt af sér eða hætt störfum af öðrum ástæðum.

6. grein - Störf stjórnar

Stjórnin leiði störf félagsins.

Starfsnefndir sem aðalfundur kann að kjósa skulu lúta fyrirmælum stjórnar um vinnutilhögun nema aðalfundurinn hafi lagt fyrir annað.

Þessi lög voru samþykkt á aðalfundi LHM 2016 þegar orðalagi í grein 2 var breytt og í grein 4 var sett inn eftirfarandi: „4-8 stjórnarmenn eru kosnir til 1 árs. Stjórnin skiptir með sér verkum varaformanns, gjaldkera, ritara og meðstjórnanda. Kjósa skal 1-2 varastjórnarmenn til eins árs.“

Fyrri lög:

Flokkur: LHM

Lög LHM

1. grein

Samtökin heita Landssamtök hjólreiðamanna, skammstafað LHM, kennitala 640399-2289.

2. grein

Tilgangur samtakanna er að efla hjólreiðar á Íslandi sem raunhæfan, umhverfisvænan og heilsusamlegan samgöngumáta og vera í forsvari fyrir hjólandi umferð.

LHM eru félagasamtök og stunda ekki atvinnurekstur.

3. grein

Tilgangi sínum hyggst félagið ná með því að útbreiða og efla hjólreiðar sem samgöngumáta,  fjölskylduvæna almenningsíþrótt, keppnisíþrótt og heilsusamlegan lífsmáta.

Samtökin beita sér fyrir hvers konar fræðslu- og kynningarstarfsemi í samstarfi við félög og áhugafólk á öllum aldri.

4. grein

LHM eru regnhlífasamtök hjólreiðafélaga á Íslandi.

Aðilar að LHM eru félög, hópar eða einstaklingar sem aðalfundur LHM hefur samþykkt með meirihluta atkvæða.

5. grein

Starfstímabil félagsins er almanaksárið.  Á aðalfundi skal stjórn gera upp árangur liðins árs.  Aðeins félagsmenn mega vera þátttakendur í aðalfundi.

6. grein

Aðalfund skal halda eigi síðar en 1. ágúst ár hvert og skal boða til hans með að minnst tveggja vikna fyrirvara með sannanlegum hætti.  Aðalfundur er löglegur, sé rétt til hans boðað. Einfaldur meirihluti mættra félagsmanna ræður úrslitum mála nema hvað 2/3 hluta greiddra atkvæða þarf til að lagabreytingar nái fram að ganga.

Tillögur um lagabreytingar skulu hafa borist stjórn samtakanna eigi síðar en 2 vikum fyrir aðalfund.

Rétt til setu á aðalfundi hafa allir fullgildir félagar í aðildarfélögum LHM og almennir félagsmenn LHM.

Enginn fundarmaður er með meira en 1 atkvæði á aðalfundi og ekki er heimilt að fara með umboð annars við atkvæðagreiðslu eða kosningar.

Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:

1.      Kosning fundarstjóra og fundarritara

2.      Skýrsla stjórnar lögð fram

3.      Reikningar lagðir fram til samþykktar

4.      Lagabreytingar

5.      Ákvörðun félagsgjalds

6.      Kosning stjórnar

7.      Önnur mál

7. grein

Stjórn félagsins skal skipuð 3-8 félagsmönnum, formanni og 2 – 7 meðstjórnendum,  kjörnum á aðalfundi til eins árs í senn.  Einnig er heimilt að kjósa allt að 8 varamenn. Stjórnin skiptir með sér verkum.  Stjórn félagsins fer með málefni félagsins milli aðalfunda.  Formaður boðar til funda.  Firmaritun er í höndum meirihluta stjórnar.

8. grein

Ákvörðun um félagsgjald skal tekin á aðalfundi.  Félagsgjöld skulu innheimt árlega.

9. grein

Rekstrarafgangi/hagnaði af starfsemi félagsins skal varið í samræmi við tilgang félagsins. Félagsmenn njóta ekki fjárhagslegs ávinnings af starfsemi félagsins.

10. grein

Ákvörðun um slit félagsins skal taka á aðalfundi með 2/3 hluta atkvæða og renna eignir þess til þeirra góðgerðarmála sem ákveðin verða á slitafundi.  

Þessi lög / samþykktir voru samþykkt á aðalfundi LHM 14 apríl 2021.

Fyrri lög / samþykktir:

Flokkur: LHM

Lög LHM til 2012

Ath. þessum lögum var lítillega breytt á aðalfundi 2012 til að leyfa einstaklings aðild að LHM aftur.

Núgildandi lög má sjá undir LHM í valmynd.

1. grein - Nafn samtakanna

Samtökin heita LANDSSAMTÖK HJÓLREIÐAMANNA, skammstafað LHM, kennitala 640399-2289

2. grein -Félagsleg uppbygging

LHM eru regnhlífasamtök hjólreiðafélaga á Íslandi.

Haldnir eru fundir reglulega með formönnum aðildarfélaganna.

Aðilar að LHM eru félög eða hópar sem aðalfundur LHM eða aukaaðalfundur hefur samþykkt með meirihluta atkvæða. Kjörgengi og atkvæðarétt hafa allir félagsmenn þeirra félaga sem aðild eiga að LHM. Aðildarfélög greiða 5% greiddra félagsgjalda til LHM. Stjórn LHM er heimilt að semja um annað fyrirkomulag.

3. grein - Markmið félagsins og verkefni

Að efla hjólreiðar á Íslandi sem raunhæfan samgöngumáta og vera í forsvari hjólandi umferðar á Íslandi.

Samtökin skulu útbreiða og efla hjólreiðar sem keppnisíþrótt, fjölskylduvæna almenningsíþrótt og heilsusamlegan lífsmáta.

Samtökin beita sér fyrir hvers konar fræðslu- og kynningarstarfsemi í samstarfi við félög og áhugafólk á öllum aldri.

4. grein - Aðalfundur LHM

Boðun aðalfundar

Aðalfund LHM skal halda í febrúar ár hvert. Boðað skal til aðalfundarins með auglýsingu sem birtist með mánaðar fyrirvara.

Eigi síðar en 4 vikum fyrir aðalfund skal stjórnin skipa 3ja manna kjörnefnd sem gerir tillögu til aðalfundar um menn í stjórn, varastjórn og sem skoðunarmann reikninga. Kjörnefnd skilar stjórninni tillögum sínum eigi síðar en viku fyrir aðalfund.

Hver sá sem vill gera tillögu um menn til kjörs í stjórn, varastjórn eða sem skoðunarmann reikninga skal á sama hátt hafa skilað stjórn LHM tillögu þess efnis fyrir áðurgreindan tíma með fullgildu samþykki viðkomandi. Aðeins skal kosið um þá menn sem tillaga hefur verið gerð um til stjórnarinnar skv. því sem að ofan greinir.

Heimilt er að stinga upp á frambjóðendum á aðalfundi en þá þarf a.m.k. helmingur fundarmanna að samþykkja að frambjóðandi sé í kjöri.

Tillögur sem einstök félög/félagar hyggjast bera upp á aðalfundi sem og tillögur um lagabreytingar skulu hafa borist stjórn samtakanna eigi síðar en 2 vikum fyrir aðalfund.

Stjórnin sendir síðan aðildarfélögum LHM tillögurnar fyrir aðalfundinn.

Rétt til setu á aðalfundi hafa allir fullgildir félagar í aðildarfélögum LHM.

Aðalfundur er löglegur án tillits til fjölda þeirra sem á hann mæta ef löglega er til hans boðað. Enginn fundarmaður er með meira en 1 atkvæði á aðalfundi og ekki er heimilt að fara með umboð annars við atkvæðagreiðslu eða kosningar.

Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:

  1. Kjör fundarstjóra og fundarritara
  2. Ársskýrsla stjórnar
  3. Skýrslur nefnda
  4. Umræður um skýrslur
  5. Reikningar bornir upp
  6. Tillögur aðildarfélaga
  7. Umræður um tillögur aðildarfélaga
  8. Kynning frambjóðanda og fyrirspurnir til þeirra
  9. Kjör formanns
  10. Kjör meðstjórnanda, skoðunarmanns reikninga og nefnda
  11. Fjárhags- og framkvæmdaáætlun fyrir næsta ár lögð fram
  12. Önnur mál
  13. Fundargerð lesin og samþykkt

Um kosningar

Í öllum málefnum skal meirihluti atkvæða ráða nema hvað 2/3 hluta greiddra atkvæða þarf til að lagabreytingar nái fram að ganga.

Allar kosningar skulu fara fram með handauppréttingu nema óskað verði eftir skriflegum kosningum. Verði 2 jafnir ræður hlutkesti.

Kosnir stjórnarmenn sitji að jafnaði eigi lengur en 4 ár í embætti samfellt

Formaður er kosinn til eins árs í senn.

2-3 meðstjórnendur eru kosnir til 2ja ára þannig að stjórnina skipa 4-6 auk formanns. Stjórnin skiptir með sér verkum varaformanns, gjaldkera, ritara og meðstjórnanda. Kjósa skal 1-2 varastjórnarmenn til eins árs.

Kjósa skal einn skoðunarmann reikninga og einn til vara.

Kjósa skal starfsnefndir.

5. grein - Aukaaðalfundur

Stjórnin getur ákveðið að efna til aukaaðalfundar ef hún telur til þess ástæður. Þá skal henni skylt að boða til aukaaðalfundar sé sett fram um það skrifleg krafa 1/3 hluta félaga/félagsmanna eða 20 félagsmanna.

Aukaaðalfundur skal auglýst á venjulegan hátt með 14 daga fyrirvara. Engar lagabreytingar er leyfilegt að gera á aukaaðalfundi og ekki að kjósa í stjórn nema bráðabirgðastjórn, ef meirihluti stjórnar hefur sagt af sér eða hætt störfum af öðrum ástæðum.

6. grein - Störf stjórnar

Stjórnin leiði störf félagsins.

Starfsnefndir sem aðalfundur kann að kjósa skulu lúta fyrirmælum stjórnar um vinnutilhögun nema aðalfundurinn hafi lagt fyrir annað.

Þessi lög voru samþykkt á ársþingi LHM 25. febrúar 2010. Sjá fyrri lög hér

Subcategories

Fréttir úr starfi LHM eða sem tengjast starfseminni

Safn pistla frá LHM eða sem tengjast starfseminni

Hér er listi yfir ýmis skjöl úr starfsemi LHM, umsagnir, athugasemdir og fleira.
Listinn er ekki tæmandi, ekki er hægt að birta vinnuskjöl og drög sem við fáum að gefa umsagnir um í trúnaði.

Fundargerðir stjórnar LHM

LHM eru regnhlífasamtök hjólreiðafélaga á Íslandi og beitir sér fyrir hagsmunum alls hjólreiðafólks.

Aðildarfélög LHM eru Íslenski fjallahjólaklúbburinn (ÍFHK) og Hjólreiðafélag Reykjavíkur (HFR) og því eru allir félagar þessara félaga fullgildir meðlimir LHM og með atkvæðisrétt á aðalfundum LHM.

Heimilisfang og fleira:

Landssamtök hjólreiðamanna
Engjavegi 6
104 Reykjavík

Sími : 6904801 (ekki SMS)
Netfang: This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Kennitala: 640399 2289 
Reikningsnúmer : 0111-26-009021

Markmið samkvæmt lögum félagsins:

"Efla hjólreiðar á Íslandi. Samtökin skulu útbreiða og efla hjólreiðar sem keppnisíþrótt, fjölskylduvæna almenningsíþrótt, heilsusamlegan lífsmáta og einnig sem samgöngutæki. Samtökin beita sér af því tilefni fyrir margvíslegu íþróttastarfi meðal einstaklinga, hópa t.d.á vinnustöðum og standa fyrir hverskonar fræðslu- og kynningarstarfsemi í samstarfi við félög og áhugafólk á öllum aldri."

Enn fremur leggjur LHM áherslu á:

-að samgöngukerfið verði bætt fyrir hjólreiðafólk
-að öryggi hjólreiðarmanna verði aukið í umferðinni.
-að hjólreiðar verði kynntar sem samgöngumáti.

Listi yfir þá sem hafa setið í stjórn LHM hvert ár, aftur til 1999.

Hér setum við efni sem er aðgangssýrt t.d. vegna mála sem eru í vinnslu eða trúnaður þarf að ríkja um.

Efnið er eingöngu sýnilegt innskráðum notendum.

PG 18/2/2010: veit ekki alveg um þörfina á þessu hér sko