Safn frétta og greina úr ýmsum áttum sem tengjast hjólamenningu, hjólafólki og þeim útbúnaði sem það notar.

Hjólaleiðir í Reykjavík

skemmtilegar hjólaleiðirVíða eru göngubrýr eða undirgöng undir umferðaræðar og stígar eru lagðir um vinsælar útvistarperlur eins og Elliðaárdalinn og Ægissíðu.

Sex áningarstaðir eru nú við stígakerfið, þar sem vegfarendur geta kastað mæðinni og notið útsýnisins, skoðað göngu- og hjólastígakort fyrir höfuðborgarsvæðið og gripið í nesti.

Staðirnir eru í Nauthólsvík, við Ægissíðu, við Gullinbrú, við Suðurlandsbraut gegnt Mörkinni, í Elliðaárdal og við Ánanaust. Reykjavíkurborg hefur lagt til númerakerfi fyrir stígakerfi höfuðborgarsvæðisins og merkt stíga skv. því .

Grafarvogur

Í Grafarvogi er m.a. hægt hjóla út með Kleppsvík við fjöruborð. Þar er hægt að skoða höggmyndagarð Hallsteins Sigurðssonar og finna skemmtilega og krókótta hjólaleið sem liggur frá Grafarvoginum að Grafarholti.grafarvogur

 

Stígur 4 Kópavogur - Hafnarfjörður

Bláþráðurinn"Bláþráðurinn". Þetta er strandstígurinn um Kárnes í Kópavogi, göturnar Súlunes og Hegranes í Garðabæ, strandstígur um Arnarnesvog og vesta nvið Hraunholtsbraut og stígurinn meðfram Reykjavíkurvegi og Strandvegi í Hafnarfirði og að álverinu. Frá Arnarnesvogi tengist hjólastígur 18 sem liggur að Álftanesi.

 

Stígur 1 - Heiðmörk - Elliðaárdalur - Mosfellsbær

hringvegur

Stígur 1n Reykjavík - Mosfellsbær

Samfelldur stígur er alla leið meðfram Sævarhöfða, meðfram Elliðaárvogi, undir Gullinbrú en yfir Grafarvog, yfir Gufunes og með Leiruvogi og loks eftir allri ströndinni uns stígurinn sveigir í átt að miðbæ Mosfellsbæjar. Í Mosfellsbæ er m.a. hægt að skoða lystigarðinn á Stekkjarflöt á Varmárbökkum við Álafosskvos. Einnig er hægt að hjóla á stígakerfi að Gljúfrasteini og þá ertu kominn 1/3 af leiðinni til Þingvalla.

Stígur 1s Elliðaárdalur - Heiðmörk

Þessi leið liggur um gróðri vaxinn Elliðaárdal og meðfram ánni að Breiðholtsbraut og upp að göngum undir götuna til móts við Norðlingaholt. Þaðan er fylgt malbikuðum stígum að Rauðhólum og eftir vegi að Elliðavatnsbænum.

Stígur 2 - Reykjavíkurhringur 21 km

reykjavikurhringur leið tvöÞetta er leiðin umhverfis Reykjavík vestan Elliðaáa og liggur meðfram Sæbraut, Geirs- og Mýrargötu, Ánanaust, Eiðisgranda, Ægissíðu og um Skerjafjörð og Fosvogsdal. Þetta er fjölfarnasti útivistarstígur landsins og eru stígar og aðbúnaður víðast hvar til mikillar fyrirmyndar. Leiðin er rúmlega 21 km og liggur að mestu meðfram strandlengjunni.

Subcategories

Safn skemmtilegra frétta og greina sem tengjast eflingu hjólreiða, hvataverkefnum og fl.

Fréttir og greinar um tæki, tól og annan útbúnað.

Safn skemmtilegra frétta og greina sem tengjast  hjólafólki og þess sem það tekur upp á.

Nokkrar hugmyndir að hjólaferðum

Víða eru skemmtilegar hjólaleiðir um land allt. Tilvalið er að fara inn á heimasíður sveitarfélaga, ferðafélaga eða reiðhjólaklúbba og afla sér upplýsinga en hér eru nokkrar hugmyndir.
Safn af skemmtilegum myndböndum