Á sumu má sigrast

hjolagarpurinnwEinar Þ. Samúelsson mun hjóla í kringum landið dagana 2. - 16. júlí  til þess að safna áheitum fyrir aðstandendur Bjargar Guðmundsdóttur og bróður hennar Kristinn Guðmundssonar. Björg glímdi við MND en lést úr krabbameini 7. júní síðastliðinn. Kristinn glímir við MND sem er ólæknandi taugahrönunarsjúkdómur. Hægt er að heita á hjólagarpann með því að hringja eða senda sms í númerið 904 1407 og gefa þar með 1407 kr. Það samsvarar einni krónu fyrir hvern hjólaðan kílómetra en gert er ráð fyrir að hjóla fyrir Hvalfjörðinn og verður vegalengdin því 1407 km.  Verkefnið hefur fengið nafnið „Á sumu má sigrast“ og má finna allt um það á heimasíðunni: http://www.asumumasigrast.is einnig á www.facebook.com/asumumasigrast

Á SUMU MÁ SIGRAST

„Auk þessa gríðarlega áfalls sem sjúkdómurinn er, þá er baráttan við hann kostnaðarsöm og við þetta bætast peningaáhyggjur. Þess vegna langaði mig til þess að gera eitthvað til að verða að liði.“ Þetta segir Einar Þ. Samúelsson, tæplega fertugur fjölskyldumaður úr Kópavogi, sem 2. júlí næstkomandi, heldur af stað hjólandi í hringferð um landið.
Tilgangurinn er að safna áheitum til styrktar Kristni Guðmundssyni og aðstandendum systur hans, Bjargar Guðmundsdóttur. Þau Björg og Kristinn hafa bæði hafa glímt við hinn banvæna MND sjúkdóm, sem veldur ólæknandi taugahrörnun.

Gengur í erfiðir

Björg lést úr krabbameini 7. júní síðastliðinn eftir að hafa háð erfiða baráttu við bæði krabbameinið og MND. Kristinn glímir enn við MND. Hann er bundinn við hjólastól og er algjörlega upp á aðra kominn.
MND virðist ganga í erfðum innan móðurfjölskyldu Einars. Hulda, systir Bjargar og Kristsins, hefur einnig greinst með sjúkdóminn. Hún er blessunarlega einkennalaus og, sem betur fer, fá  hann ekki allir í fjölskyldunni.

Fagnar afmæli sonarins á hringveginum

Einar er systursonur þessa fólks. Hann er þriggja barna faðir úr Kópavogi og rekur litla auglýsingastofu. Hann hefur hjólað nokkuð, sérstaklega frá hruni, þegar bensínverð tók kipp upp á við. Hann áætlar að hringferðin taki hálfan mánuð en hann mun fagna eins árs afmæli yngsta sonar síns á Akureyri, gangi ferðin samkvæmt áætlun.

Einar leggur af stað í hringferðina frá Furulundi í Heiðmörk laugardaginn 2. júlí, kl. 7.

Króna á hvern kílómetra

Hægt er að heita á Einar með því að hringja eða senda sms í númerið 904 1407. Með því er gefin ein króna fyrir hvern kílómetra sem Einar hjólar, alls 1407 krónur. Sú er lengd hringvegarins með Hvalfirði, en hann mun Einar hjóla allan.

Fylgstu með á netinu

Verkefnið hefur fengið nafnið „Á sumu má sigrast“ og má finna allt um það auk leiðarinnar sem Einar hjólar og áningarstöða á heimasíðunni: http://www.asumumasigrast.is . Einnig má fylgjast með á Facebook: http://www.facebook.com/asumumasigrast

Nánari upplýsingar veitir Einar Þ. Samúelsson í síma 691 0171 og í tölvupósti:  This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.