Í frétt á vef Garðabæjar (11.05.2017) kemur fram að í síðustu viku hafi verið lokið við síðari áfanga í uppbyggingu nýrrar göngu- og hjólaleiðar milli byggðar og friðlands Vífilsstaðavatns þegar stígurinn þarna á milli var malbikaður. Stígurinn liggur sunnan Vífilsstaða meðfram votlendi Vífilsstaðalækjar og Vatnsmýrar sem er affall Vífilsstaðavatns og hæðanna í kring. Búið er að koma bekkjum og lýsingu meðfram stígnum sem er tæpur kílómetri að lengd.
Sjá einnig frétt um uppbyggingu gönguleiðarinnar frá október 2016.
Hraunstígur í Wapp-inu
Stígurinn er einnig kominn inn í gönguleiðsagnarappið Wappið undir heitinu Hraunstígur. Í Wapp-inu má nálgast fjölmargar gönguleiðir, hlaupaleiðir og hjólaleiðir í Garðabæ án endurgjalds í boði Garðabæjar.
Hér má lesa nánar um Wapp-ið.
1. mynd. Horft til austurs í átt að Vífilstaðavatni.
2. mynd. Hér er horft til vestur að Reykjanesbraut.