Snæfellshringurinn 2010

Snæfellshringurinn 2010Hjólamenn héldu lengstu hjólreiðakeppni ársins á Snæfellsnesi í dag. 8 keppendur hófu leik en Sigurgeir Agnarsson sigraði með sjónarmun eftir að hafa barist við vindinn og óslétt malbik í rúma fimm tíma. Hann hjólaði lengst af með Gísla Karel, Hlöðveri og Gunnlaugi en á endanum voru það hann og Gunnlaugur sem hjóluðu saman yfir Vatnaleiðina og reyndu báðir að rykkja frá hinum en þar sem bæði óslétt malbik og vindurinn höfðu tekið sinn toll voru árásirnar fremur af vilja en mætti. Það endaði því á endasprett milli þeirra sem Sigurgeir vann með rúmum 5 sentimetrum. Hlöðver Sigurðsson kom svo í mark tæpum 5 mínútum á eftir þeim félögum og Gísli Karel Elísson sem lengst af hjólaði í fremsta hóp varð fjórði rúmum 18 mínútum á eftir fyrsta manni.

 

Vindur var keppendum fremur óhagstæður, fyrst hliðarvindur úr norðri á sunnanverðu nesinu og svo vindur ská á móti á nesinu norðanverðu. Hjólmenn buðu keppendum uppá pastasalat þegar í mark var komið og Innnes uppá hinn sívinsæla Capri-Sonne drykk og Corny heilsustangir.


Úrslit


Myndir


Sérstakar þakkir:

Emil Þór Guðmundsson

Valgerður Halldórsdóttir

Arnaldur Gylfason

Vegamót

Lögreglan í Stykkishólmi

Innnes

Kriacycles

Sigurgeir


Frétt af hjólamenn.is