Nýr hjólastígur meðfram Vesturlandsvegi

Samgongustigur_Vesturlandsvegur_2011_001-1Föstudaginn 9. september síðastliðinn  var undirritaður samningur Mosfellsbæjar og Vegagerðarinnar um gerð hjóla- og göngustígs meðfram Vesturlandsvegi.  Um er að ræða samgöngustíg sem tengja mun núverandi stígakerfi í Mosfellsbæ við við sveitarfélagamörk við Reykjavík.  Möguleikar hjólreiðamanna að komast beina leið milli sveitarfélaganna verða því betri en verið hefur.

Nýi hjóla- og göngustígurinn mun liggja sunnan og austan Vesturlandsvegar frá Hlíðartúnshverfi í Mosfellsbæ, gegnum skógræktarsvæði Mosfellinga við Hamrahlíð, og fyrirhugað að hann tengist stígum í Úlfarsfellshverfi í Reykjavík við byggingu Bauhaus.  Í dag eru þarna aðeins grófir malarstígar og gamall lagnastokkur Orkuveitunnar hluta af leiðinni og því erfitt að komast beinustu leið til Reykjavíkur þessa leið.  Hingað til hafa hjólreiðamenn því þurft að hjóla á Vesturlandsveginum sjálfum eða nýta fallegan en hlykkjóttan útivistarstíg meðfram Leiruvogi sem lengir leiðina talsvert.   Stígur milli hverfa Mosfellsbæjar og Reykjavíkur meðfram Vesturlandsvegi mun því opna fyrir betri möguleika á að nota reiðhjól sem samgöngumáta fyrir þá sem vilja komast sem greiðast milli Mosfellsbæjar og Reykjavíkur.   Auk þess mun gerð stígsins auka aðgengi Mosfellinga að skógræktarsvæðinu við Hamrahlíð til muna.

Stígurinn verður hannaður meðal annars með hliðsjón af þörfum hjólreiðamanna og verður um 3 metra breiður og um 2.7 km á lengd.
Hönnun stígsins er lokið, og er gert ráð fyrir að uppbygging hans verði boðinn út nú í haust. Stefnt er að því að fyrri hluti stígarins sem nær að skógræktarsvæðinu við Hamrahlíð verði tilbúinn sumarið 2012 og að hann geti verið fullkláraður sumarið 2013.

Vonast er til að gerð samgöngustígar meðfram Vesturlandsvegi muni gera Mosfellingum og öðrum kleyft að nýta sér reiðhjól meira sem samgöngumáta milli sveitarfélaganna og auka þannig áherslur á vistvænar samgöngur í sveitarfélögunum.

Sjá kort hér: Kort - PDF



Uppruni: http://www.mos.is/Lesafrett/nyrhjolastigurmedframvesturlandsvegi

 

Samgongustigur_Vesturlandsvegur_2011_001-1

mosfellsbaer